Hleyp ég nú svo hratt sem má
held ég sé að sleppa,
á hlustir skellur hundagá
hátt frá ljótum seppa.
Drullan úti djöfulleg
drepur alla sælu
Drullan úti djöfulleg
drepur alla sælu
muldra fyrir munni eg
mædda barnagælu
jólasveinum trauðla trúa
tyllimenn og -kvendi
jólasveinum trauðla trúa
tyllimenn og -kvendi
Fagrir menn í fjalli búa
fögur ljóð þér sendi.
Skal ég bílaböðli ná
berja merja lemja
Skal ég bílaböðli ná
berja merja lemja
En betra vær'að öskra á þá
og heyra þá svo emja.
Ég sofnaði í gærkveldi,
vaknaði upp í slefi.
[bendi á bragfræðiþræði:
http://www.heimskringla.net/bragur/
http://rimur.is/
til fróðleiks. kv.BP]
Ég sofnaði í gærkveldi,
vaknaði upp í slefi.
Þakkaðu fyrir að það var ekki í eldi
ellegar fúlu fenja sefi (Þetta er nú varla gilt)
Bragfræðinni margir bögglast í,
bræði vekur hjá mörgum,
Skal ég bílaböðli ná
berja merja lemja
Þegar mun ég makka slá
mun hann góla, emja
Best er þetta böðulsgrey
barkann frá að slíta.
Best er þetta böðulsgrey
barkann frá að slíta.
Æji svona ekki nei
er þér mál að skíta?
Náungann með ástaryl
elska skal og virða.
Náungann með ástaryl
elska skal og virða.
Ormur vill með orm í gil
aður niður gyrða
Eftir sápu ekki skalt
inni í sturtu teigja þig
HAHAH!
Eftir sápu ekki skalt
inni í sturtu teygja þig
Margt er aurinn fyrir falt
forseti hjer ybbar sig
Bragfræðina Bagglýtingar
bögglast við að muna
Eftir sápu ekki skalt
inni í sturtu teigja þig
Ekki þykir kápu í kalt
kann í þurrt að klæða mig
Ef þig teygir alltof langt
aðrir líta auga
Ef þig teygir alltof langt
aðrir líta auga
Alltaf skaltu yrkja rangt
-end' ertu með bauga.
Stöndum saman, stuðlum rétt
stingum ekki höfð' í sandinn
Stöndum saman, stuðlum rétt
stingum ekki höfð' í sandinn
Það jú gerum ljúfir létt
Látum sem að ey sé vandinn
Stuðlabergið stendur beint
steingert og sexý
Stuðlabergið stendur beint
steingert og sexý
Líkt og ostakarfa einmana með kex'í.
Ekki viljum enda svona
elskan, finnum betri hljóm
Stuðlabergið stendur beint
steingert og sexý
Finst mér það nú ljóst og leynt
loks er ei með x í.
of seinn
Ekki viljum enda svona
elskan, finnum betri hljóm
Ég sem það nú var að vona
væna gefur sitt blóm.
Tæki þurfa tölvert pláss
tækjaskáp og hillur
Tæki þurfa tölvert pláss
tækjaskáp og hillur
Þó tel ég betra stofustáss
stæltar, naktar frillur.
Visa, Euro, víxill, lán
og veðsett húsið líka
Visa, Euro, víxill, lán
og veðsett húsið líka
Skelfileg er skuldasmán
skarinn út mun fríka
Hér er svo botninn hans Vladimirs sem átti að botna með réttu, þá er þráður var slitinn:
Bragfræðina Bagglýtingar
bögglast við að muna
Bragfræðina Bagglýtingar
bögglast við að muna
Barbapabba bragflutningar
ber mönnum að una.
Rignir núna frostið fer
fannir þessar hverfa