Vappanadi hér vonandi
verður meira Lappi
Skáldar betur skínandi
skólaskáld af kappi
Keppist við að kúka meir
krana frá er snúið
þræði úr mér þykkan leir
þar til allt er búið.
Búið ekki bragða tafl
bústin reynist lortinn
Er mig skortir aftan afl
að mér læðist sortinn
Sortinn yfir öllu þekur
enda komin nótt.
Ölæðið þá yfir tekur
af því drekkum gnótt.
Gnótt við fáum gjöfum af
góð er tíð á landi
samt er örbyrgð hér við haf
hér er líf í strandi.
Strandað hafa skip ófá
fyrir suðurlandi´,
grandar bölvað brimið þá
britjar í grjót og sandi
Strandar ávalt stuðlum á
stauli nefndur lappi
Situr hann við sundin blá
sæll einfaldur kappi
Kappar hafa keppnisskap
kálfum útaf bola
stefna þeir í stjörnuhrap
stjarfir far´að vola.
Vola guma glöggt má sjá
greddustinginn kenndi
fellur eflaust foli sá
fyrir eigin hendi.
Hendi nára haltu við
hennar, Ormur-Stormur
Vöknar milli vara kið
verður, ormur gormur
Gormur er í heimskum haus
hali bundin er við rass,
gengur svo þessi skarvur laus
skrattakollur og arga hjass?
Hvað í fjáranum er hjass?
Hjass er mikil herfa, feit
ég held a.m.k.,
lengr´en það ég lítið veit,
lærði ég af osti.
Ost ég borða oft á dag
einn og sér á brauði
reyni þræði að róta í lag
rengdur var hans dauði.
Hvað í fjáranum er hjass?
Feit kona...held ég.
lappi gerði ógilt að venju og næsta orð því gormur.
Gormur minn er greddutól
gyðju ásta lofar
Fyrir henni sér ei sól
sætu blómi ofar
Ofarlega er ég með
axlir mínar báðar,
kúlu oná hálsinn hleð
held mig þá til náðar.
Hvað í fjáranum er hjass?
Feit kona...held ég.
Eru þá hlass og hjass það sama? Klórar sér í höfðinu
Náðarhöggið hal ég gaf
höfuð fauk af öxlum
Beit í skjöldinn beint í kaf
með brúnum endajöxlum