— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 364, 365, 366 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Grislingur 18/11/05 15:02

Ekki lét hún á sig fá
uppí munninn renndi,
og enn var tekin aftanfrá
af ófétinu Gvendi.

Dagar líða - ár og öld
allt nú gengur hraðar

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Tobbi heimalningur 18/11/05 15:48

Dagar líða - ár og öld
allt nú gengur hraðar
Engin tími ekkert kvöld
engar pussur graðar

Tímaleysi til mér finnst
töflur við því gleypi

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kveldúlfur 18/11/05 19:02

Tímaleysi til mér finnst
töflur við því gleypi
Aldrei hef ég heimskur kynnst
hér eins miklu fleypi.

Rafrænar vísur ég ræsi með parti
rísa þá upp hérna skáldin svo mörg

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Lopi 18/11/05 22:45

Rafrænar vísur ég ræsi með parti
rísa þá upp hérna skáldin svo mörg
Snillingar okkar þeir skálda með skarti
og skelfing eru orðin þjóðskáldin örg

Pínulítill partur hér
potast inn á Lútinn.

Lopinn hefur andlit |||||||| The kind monkey |||||||| Ég fíla rokk og rok
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 18/11/05 22:53

Rafrænar vísur ég ræsi með parti
rísa þá upp hjerna skáldin svo mörg
æsist þá krummi í kveldúlvinn narti
kveinstafir ,jag og lappa er örg.

Nú er úti næðingur
nálgast lægð úr austri,

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 18/11/05 23:02

of seinn ..

Pínulítill partur hér
potast inná lútinn
kátur lappi komin er
kveða vill um strútinn.


Fullur af losta í leini var
letingi og róni,

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 19/11/05 06:41

Nú er úti næðingur
nálgast lægð úr austri,
Bestur finnst mér bræðingur
úr Berufjarðarklaustri.

Fullur af losta í leyni var
letingi og róni,

Hann af öllum hundum bar
Hellisgerðisdóni.

Alfreð hopar út í kant.
Ætli það sé betra?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 19/11/05 08:15

Alfreð hopar út í kant.
Ætli það sé betra?
Lokað hefur ljótum trant
ligari ex-setra.

Rottan fyrst frá borði býst
briggið þegar sekkur

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Lopi 19/11/05 11:15

Rottan fyrst frá borði býst
briggið þegar sekkur
Af fjölinni nú skömmin skýst
Skipið sjóinn drekkur

Klukkan tíu tek ég lest
til Túnis og Senegal

Lopinn hefur andlit |||||||| The kind monkey |||||||| Ég fíla rokk og rok
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 19/11/05 13:31

Klukkan tíu tek ég lest
til Túnis og Senegal,
Þar fögur er nóttin er sólin sest
sem gleðja mun ungan hal.


Þar við tekur gleði og glaumur
gengdar laus drykkja öll kvöld,

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kveldúlfur 19/11/05 17:44

Þar við tekur gleði og glaumur
gengdar laus drykkja öll kvöld,
Daginn eftir dapur, aumur,
oft þá tekur þynnkan völd.

Edrú skáld er ekki til
enginn spíra neitar.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 19/11/05 18:25

Edrú skáld er ekki til
enginn spíra neitar
Ungu "skáldin" ekki skil
alheimsskilnings leitar.

Rak í bakið rýting gylltan
rann þar blóð í feðraslóð .

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kveldúlfur 19/11/05 20:05

Rak í bakið rýting gylltan
rann þar blóð í feðraslóð .
lak af þaki bræðrabyltan
barst þá ljóð um mæðraglóð.

Glóðin hitar glæður þær
gló'í myrki svörtu.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sundlaugur Vatne 19/11/05 23:43

Glóðin hitar glæður þær
gló'í myrki svörtu.
Frost er úti, fjúk og snær
finn ég yl hjá Mörtu.

Nú mun verða næturfrost,
nístir tölvur vorar.

Varaformaður Sundráðs Baggalútíu, stjórnarmaður Ungmennasambands Baggalútíu, ritari Ungmennafélagsins Andspyrnunnar og 1. varamaður á lista Bændaflokksins í Hreppsnefnd Ýsufjarðar
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 19/11/05 23:50

Nú mun verða næturfrost,
nístir tölvur vorar.
Uni' ég við þann illa kost
ætla því að fá mér ost.

Botninn þessi báttlegur
bögu góða skemmdi.

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
lappi 20/11/05 00:50

Botninn þessi báttlegur
bögu góða skemdi,
er í ljóðun lélegur
letur gerðin stemdi.


Ljósið bjarta stjarna skær
skartar himin ljóma,

lappi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kynjólfur úr Keri 20/11/05 14:47

‹Minnir Lappa á reglur um st og sk stuðlun›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Kveldúlfur 20/11/05 22:54

Það má auðveldlega laga stuðlunina til að þetta gangi, en til þess þarf ég að breyta fyrripartinum, vonandi er það í lagi.

Ljósið bjarta skín svo skær
skartar himin ljóma,
Stjarnan glitrar, tindrar tær
sem tígulrós í blóma

Svartan himinn svífur á
sjá þar féll ein niður.

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 364, 365, 366 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: