Borða salat og vona að það sé ekki hvítlaukur í þessum litlu kexfiskum sem ég setti yfir það, nenni ekki að anga illa í skólanum.
Fara að læra. Þ.e.a.s. ef mér tekst að slíta mig úr tölvunni...
Læra fyrir Paläographiuna, sem byrjar eftir tvo tíma.
Á leiðinni í Svartaskóg að borða villisvín með kóngsveppum og súrkáli.
Halda á vit Google í von um að finna sjerhæfðar upplýsingar er oss vantar.
mjólka rauðvínsbeljuna
Ég er að fara að hita vatn og reyna að drepa hóstann sem ég fékk skyndilega.
Fara upp í rúm og vona innilega að magapínupúkinn gubbi ekki yfir mig um leið og ég sofna. hryllir sig
Drekka te, eta kex og lesa bók.
Prjóna.
Reyna finna almennilegt æti og lesa Harry Potter... hann er skiluru kærastinn minn.
Fara í mat til ömmu, bújah!
Reyna að finna mér eitthvað matarkyns
Æi fara bara að sofa...
Jæja. Ég ætla að skreppa út á leigu. Ég hef augastað á 'nýrri' gamalli mynd með Haraldi Austmann sem ég tók eftir í gærkvöldi.
Nú nú.
Ég er að fara að velta fyrir mér af hverju kaffihúsmálverk eru svona ömurleg.
Vjer vorum að þurrka oss eftir að hafa annað kvöldið í röð lent í baði utandyra er slíkt var eigi ætlunin (venjulega förum vjer í bað innandyra).
Það sem vjer erum svo að fara að gera er að setja inn innlegg í veðurþráðinn í tilefni af þessu.