Góðir drengir, dánumenn,
djarfir liði fylkjum
Rauðsokkunum ríðum enn
raftar lostahylkjum
Ekki skulu óriðnar
ofan í jörðu fara
Ekki skulu óriðnar
ofan í jörðu fara
Heljarþrautir þjósviðnar
þrútnar elda skara.
Hlaupa þar um hlandsprengdar
hlægilegar júnkur.
Hlaupa þar um hlandsprengdar
hlægilegar júnkur.
Finnur oft til andþrengdar
algjör fituhlúnkur.
Gott mér þótti að koma í koll
konu minnar heitinnar.
Gott mér þótti að koma í koll
konu minnar heitinnar.
Hlógum þar í hollinn skoll
hress var hún við leitinnar
Krumla ljót í kaldri gröf
krafsar þurra mold
Krumla ljót í kaldri gröf
krafsar þurra mold
Á því verður einhver töf
að mér rísi hold.
Draugar eru dúndurhressir
dansiböllum á
Krumla ljót í kaldri gröf
krafsar þurra mold,
þolir ekki þessa töf
þráir víf og líf á fold.
Mærin unga man ég þig
margt við áttum saman,
Draugar eru dúndurhressir
dansiböllum á
Vafra hvítir vofufressir
vífum sínum hjá.
Trylltan stíga draugar dans
dóma þunga hlutu.
Trylltan stíga draugar dans
dóma þunga hlutu.
oft þeir dansa Óla Skans
ásamt Desmond Tutu.
Mikil skelfing þetta Skype [Snupr: stuðlar í lágkveðum. Betra: Það er mikil skelfing, Skype. Hlebbi.]
skrattinn má það hirða
Mikil skelfing þetta Skype
skrattinn má það hirða
Þykir brambolt, bölvað hype
best er það að spyrða.
Langamma mín ýsu et
og með soðna töflu
Langamma mín ýsu et
og með soðna töflu,
þettað er sko merkis met
mest hún vann í Kröflu.
Ljúfar átti drauma dísir
dekurrófur tvær,
Lífið er hvorki langt né stutt
leyfi ég að segja mér.
en margur hefur maður rutt
mæðunni á undan sér.
Dásemd lífsins dreymir flesta
dögun bjarta fá að njóta,
Dásemd lífsins dreymir flesta
dögun bjarta fá að njóta,
þó er umbun allra besta
að í svefni ná að hrjóta
mið er vika, mædd er lund
myrkur allt um kring
mið er vika, mædd er lund
myrkur allt um kring
Auman sá ég innihund
er elti skott í hring.
Farðu út og fáðér hreint
og ferska loftið tæra.
Farðu út og fáðér hreint
og ferska loftið tæra.
Þá á barinn fer ég beint
belginn minn að næra
sumir fara á fætur - helst
um fimmleytið og yrkja
sumir fara á fætur - helst
um fimmleytið og yrkja
Ekki það til afreks telst
að andan góða styrkja
Afrek þóttu ægileg
einni nóttu síðan
Afrek þóttu ægileg
einni nóttu síðan
Þynkan ekki þægileg
þoli ei vanlíðan.
Dæmir okkur durex lið
Dráttar tíðni mælir
Dæmir okkur durex lið
Dráttar tíðni mælir
Ungir bæla konu kvið
krógar íslands sælir
Ungur nemur yngri temur
ungur brúkar smokka
Dæmi okkur durex lið
dráttar tíðni mælir
konan það merki kannast við
kveinkasr sér og ælir.
Görótt ölið gerist nú
gleði ei veitir neina,