Stikluvik með þýzkhendu-ívafi:
Z. Natan líkar lax
lúðubita með.
Dominus tecum, in terra pax.
Tindabikkja - réttur dags(ins).
-------------
Fyrripartinn fer ég á
fætur, ef ég nenni
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hrikalega er þetta sniðugt svið.
Krumpast svo saman og kreppir kvið
kræfur þú suprar allt rímnalið
Frjálslega höldla með frelsis rétt
fræðingar BNA stjórnar
Frjálslega höldla með frelsis rétt
fræðingar BNA stjórnar
Sjaldan það þykir víst þrusu frétt
er þursinn í vestri rétt fórnar.
Runninn í vestri rasar út
ríflega mannréttinn treður.
Runninn í vestri rasar út
ríflega mannréttin treður,
brennivín drekkur,Bussi af stút
bjálvinn elginn svo veður.
Bjart er á fjöllum og fagurt í dag
frjáls ég um heiðarnar arka,
Dymmt er í kjöllurum, drungi og sót
dapur ég kúri í fleti,
mér létti í sinni effögur,snót
stæði mig ekki að leti.
[Snupr: S, SN og ST stuðla ekki saman. Auk þess standa sinni og snót bæði í lágkveðum, þannig það það hefði ekki gengið hvort eð er. Hlebbi.]
Leti er arga slæmur löstur
lífsins allra versta böl,
[Snupr: Of langt (tvær heilar kveður) er á milli leti og lösturt[/i]. Bannað. Hlebbi.]
Leti er arga slæmur löstur
lífsins allra versta böl,
Sjá við hafbrún segl og möstur,
senn við drekkum úlenzkt öl.
[Snupr: Þótt Sulli kveði jafnan rétt verð ég að snupra fyrir að hunza ekki ógilt framlag næsta manns á undan. Hlebbi.]
Kátir sitja kappar hér
kveða skjáinn á
Dimmt er í kjöllurum, drungi og sót
dapur ég kúri í fleti,
ég er að fara á íþróttamót
og ætla að ná einu meti.
[Smásnupr: Þegar 'é' stuðlar við sérhljóða skrifar maður 'e'. Sbr. Ísland ögrum skorið // eg vil nefna þig. Auk þess: einu i 4. línu er ofstuðlun.
Þar sem þessir annmarkar eru aðeins minniháttar og auðfínpússanlegir hefjist næsta vísa á fyrriparti Grísla á næstu síðu.
Hlebbi.]
(það ætla margir að hafa hamborgarahrygg um jólin)
Skammdegisþunglyndi þjakar nú mig
mín þrautaganga er hafin
Meti ég náði í naflakuskbori
nýt þess að vinna þá göfugu þraut
Í frístundum helgum þá safna ég hori
og horfi á gayporn þá eitt sinn ég naut
ææææ er ég á vitlausum þræði.....
hér kemur það sem botna skal
Skammdegisþunglyndi þjakar nú mig
mín þrautaganga er hafin
Skammdegisþunglyndi þjakar nú mig
mín þrautaganga er hafin
skapgerðarraunir mér ríða á slig
rennur líf úr mér safinn
ég skríð undir sængina senn
sef þar fram á vor
Minnumst þess um myrkvuð jól
er Múhammeð fæddist í jötu.
Spámaður sá með spyrnu tól
Spólaði um á lödu
Á krossinu karpaði Jesú
kaupauka Júdasar um
Minnumst þess um myrkvuð jól
er Múhammeð fæddist í jötu.
þar hrein sá lávarður heims - og gól
uns hellt var á króann - úr fötu
Of seinn.
Á krossinum karpaði Jesú
kaupauka Júdasar um
líkast sem vikurgjall Vesú-
víusar flytúr honum
nálgast jóla lífsglöð læti
lofgjörð syngja börnin glöð
nálgast jóla lífsglöð læti
lofgjörð syngja börnin glöð
í hádeginu heim ég mæti
húsfreyjan er orðin gröð.
Óðum nálgast áramót
með allskyns sprengjulátum
Fjandinn hér er fögur snót
með flugelda frá skátum.
Áramótin eru vond
sem elda menn og dýr
Hressandi er himneskt kaffi
hommar geta drukkið te.
Ég kominn er úr strembnu straffi
hjá stúlku eftir viku hlé.
Hannes Hólmsteinn öllu stal
frá Halldóri um árið
Öllu Hannes Hólmsteinn stal
frá Halldóri um árið:
Sauðahaus og súrum hval
og sápu fyrir hárið
Góðir drengir, dánumenn,
djarfir liði fylkjum