Allrahanda er nú þörf
aum að vinna konustörf
Tíkin rétt við tíðahvörf
téð mun vera í fríi djörf
Ingólfstorg mun yfirfyllast
arka þangað fraukur brátt
Síðan munu saman tryllast
syngja og öskra afar hátt
Ingólfstorgi orga hjá
"aura viljum fleiri sjá!".
Enginn borga ætlar þá
utan körlum liggalá!
of seinn
Hátt þær emja, hásar verða
háða orustu skal herða
Koma kaldar, svangar heim
Ókátar elda handa þeim
<Þeim ég ætla það að segja
þrautaganga hún er ströng,
úti mega þrestir þreyja
og þúfutippi dægrin löng
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Brestur í óstöðvandi grát
Löngum var ég lúmskur mjög
letingi með hor
hélt ég ei á hjólasög
hvað þá litlum bor
borin von að veslings krummo
vilji hjálpina mína
heldur finnst mér hann þó lummó
- hann þarf myndina sína
Sínum stökum hefur stráð
stakkurinn hann Krummó
Hef ég áður fugla fláð
fáa samt eins lummó
Sinn er hver harmleikur
háð er eina gleðin
hugurinn gjörveikur
enda haus löngu freðinn
Lummó er að lát'undan
leiðindum við aðra
stunda óður óskundann
ódýr kjafta blaðra
Blaðra hérog bull'á vixl
í bundnu máli,
áfram lemur lappi gísl
liggjandi í káli.
Kál er kjarnafæði
kraftmikið og gnótt
Ánum finnst það æði
það eta dag og nótt
Nótt og dag ég nuddað get
neðri varir kvenna.
Í því setja mundi met
mundi' ég bara nenna.
Hristir hausinn yfir bullinu..
Nenni ég að nudda þig?
Naumast þú ert djarfur!
Syngdu heldur söng um mig
og sertu eins og tarfur!
Tarfur, hestur, hundur, svín
herja að láni stefið
Baulað, hneggjað, geltir, hrín
hér er blóðugt vísan þín.
Hvern andskotann er ég að gera einn inn á Gestapó klukkan rétt rúmlega miðnætti.
‹Var ekki í góðu skapi fyrir, en tíðindin af Skabba og það með hvaða hætti hann var hrakin burt gera hann alveg vitlausan .›
þín er saknað Skabbi Skrum
skammastu til baka
í bæli þínu bíður hrum
en bragðgóð skúffukaka