Mikið breytir Móður-Jörð
mjöll í frosti slíku.
Óðar herpast opin börð
- afturbatapíku.
það mér alltaf þykir best
(þá af vana)
er pils fer upp og píkan sést
að pikka í hana
Blútur gerði blautan mann
bláleitan og kaldan
svakalega á svelli rann
svívirða nú rónar hann
Afhending er skemmtilegur og auðveldur bragarháttur. Ef til vill stofnar einhver Afhendingaþráð. Vísa dagsins er afhending:
Ógurlega á mér stendur oft í messu.
Konan mín er þreytt á þessu.
P.S. Mikið var vísa Ísaks Dinesens góð.
Mig langar að prófa...
Alltaf langar alka smá í Ákavíti
Finnst það vera löst og lýti.
Bölverkur... er þetta ekki í lagi?
Meistari Skabbi þarf ekki að spyrja Bölverk, enda traustur.
Hvað skal núna yrkja? er
ekki gott að segja.
Varla fæðist vísa hér,
víst er best að þegja.
Veldur oftast meyjarmunni
mikið stífu beini.
Stari - þarna stúlkurunni
og stúfur einn í leyni.
Prentarinn í pati er
punktar ekkert niður
á gati stendur gagnlaus hér
geyið ei mig styður.
Hlíðarfjall er hættuspil
Halda þangað sauðir
Hendast niður hæðir gil
Hverfa þaðann dauðir.
Ort í annars orðastað:
Graður er, en getulaus
ginna kann ei heldur
vildi eistna- vera -laus,
vera bara geldur
Oft mig hefur til þín teymt
tittlingurinn á mér.
Þér ég aldrei gæti gleymt,
góða, sofðu hjá mér.
Þó að ég sé þreyttur oft
þigg ég svefninn tregur
þegar heims á háaloft
herrann upp mig dregur.
þreytan kemur þreytan fer
þróttur brátt mun fara
Herran mig á höndum ber
Hels í skítkjallara
Starir þegjandi út í loftið
Vísa dagsins er stúfhenda.
Einfeldningur spyr bara sísvona:
Hví að taka út þetta þykka og þrútna skinn
til að stinga aftur inn?
Skellihlær að síðustu vísu
Isak þú er ekta skáld
ætíð kannt að gleðja
Kastar hérna kvæðasáld
kann þú oss að seðja.
Harmi slegið hjarta mitt
hamast mér í brjósti
Vertu sæll, við erum kvitt
var í tölvupósti
Afi minn hin aldraði
Arinbjörn á Felli
Gömlu ömmu galdraði
með gríðarstórum belli
Víst má ganga að því gefnu
Hvað vinstri-grænir brasa
Þeir boða þykka menntastefnu
Og Þjóðnýtingu grasa