Hvílast nú í Hveragerði
Hvalaveiðimenn
Á sjóinn fara senn og verði
svakaveiði enn
Enn er vísan ekki dýr
einsins er hún virði
djöfull er hún drullu rýr
drasl úr Eyjafirði
Eyjafjarðar mærin mjúka
mörgum yljar konan sú
henni sveita bændur strjúka
serða líka og hana nú.
Núna ættir nokkrar línur
nefnileg'að senda
Enter lagar skránings skrínur
Skabbi vill á benda
Krummi, sendu nú póst á enter@baggalutur.is svo þú getir skráð þig inn
Benda vil ég vandlátri pussu
vel að passa æru sína og trú
kvennrétindi koma úr pussu
kalinni, þurri og með brú
Brúnin lyftist Bínu senn
blautri í næturhúminu.
Því gaman hef ég af því enn
að leggja á skeið í rúminu
Í rúminu með rekkjunaut
rosa mikið flippið
Gældi ég við skafið skaut
og saug hún á mér typpið
og skar hún af mér typpið
Svo vildi skáldið kveðið hafa.
Hann er voða visin strákur
varla hans lilli mindi passa
ef til vill í kerlu krákur
kónískur í hænu rassa.
Tíndur er lútsins lykillinn
lásinn opnið fyrir krumma,.
vindum vinir hnikilinn
vælir gömul lumma.
Lummur eru lostgæti
leysast upp í munni
Ræð mér ekki yfir kæti
þær amma baka unni
Unni var mér ávalt kært
undir pils að þreifa
lærin mjúk og holdið hært
held ég sæmi greifa
greifi rís nú greni úr
gríðarlega kátur
opnast leyndar unaðs búr
innri kannar gátur
Gátur leysir gamall ver
góm og létta vinda.
Belti leysir blítt á sér
bara til að mynda.
Myndabrag um meyjalag
munaðshóla og gjótur
Fjarska aumur fjórða í dag
ferlegur er þrjótur
þrjótar eru þrestir
og þúfutittlingar
feitir eru flestir
og föðurlandssvikarar
Jamm og já.
Svikarar ó svartir þrestir
svífa um og flytja lestir
Þessir fugla flensu gestir
farsóttir og slæmar pestir.
pest er af þér anginn minn
ertu búnað kúka?
sjáum hvort ég sökkul finn
sem má á þig brúka