Á jólum botna blæsma varð
Berta stóð til fjalla
því hún var upp við Heljarskarð
Að hitta aðra kalla
kalla allar kellingar
komið snjöllu vinir
stundum allar stellingar
stillið vallla linir
Linir gerast lallarnir
lífsbjörg gröðum konum,
verða kátir karlarnir
kengfullir að vonum.
Vonum sínum vinnur hann
vinur mikið lengur,
allar listir Lalli kann
ljúfur ungur drengur.
---------------.á visuna á undan.
krummo.,
drengur mikinn dugnað vann
dæsti stundum saman
kunni margar kúnstir hann
kellu þótti gaman
Gaman er að gera ljóð,
gaman er að stela,
gaman er að gilja fljóð,
gaman er að kela.
Kela við og káfa á
klípa létt í kinnar
Neðan beltis nokkuð má
nudda mikið innar
Innri maður ávallt var
árans bévans rindill
af í drykkju öðrum bar
ákavítis-engill
Engill dauðans Davíð er,
drulluskítakarakter,
ef hann burt af Fróni fer
flestum líður betur hér.
Hér er gott fyrir vin að vera -
(vott og hlýtt)
riðlast, hamast á, ríða, skvera -
(rakt og vítt).
víða sjáum vergjörn fljóð
virðing sýnum þeim
ótal kveðum um þau ljóð
æðri gefum keim
Keimlík er hún tíkin Táta
Tobbu gömlu á Örkinni,
fer á kostum lítil láta
loðin tiksa í Mörkinni.
Mörkin hún er mjög svo fín
mikills er hún virði
Mætari er samt meyjan mín.......[ath. hér er ofstuðlað, "mætari/ er samt/ meyjan/ mínkv.Barbapb.]
magnaða á Ólafsfirði
Ólafsfjarðar mærin mjó
margt þurfti að þola,
að far'á trillu um saltan sjó
og sækja óðan bola.
Boli var ei bundinn inn
brjálaður í völdin
hljóp´ann yfir hundinn minn
hlý og fögur kvöldin
Kvöldin björt við Kópasker
kynda tíðum undir mér
vegna þess að þar er ber
þokkadísin Jennifer.
Jennifer er jólabarn
japlar eplin rauðu nú
Leikur sér með lopagarn
Lopez heitir kvinnan sú
Sú er óskin ósögð mín
ótal á mér drauma,.............[ath.hér er ofstuðlað "ótal/ á mér/ drauma". "ótal/ mér á/" gengikv.Barbap.]
snerta kvorki výf né vín
né værðarvoðir sauma........[né/ værðar/voðir/sauma... hér er orstuðl. líka kv.BP]