Hvað gerði ég af mér?
Þú gerðir ekkert af þér, það voru aparnir umhverfis.
Ljótar eru sögur systra
setja mann í klessu
ógnarfjöldi höfða hristra
í harmi yfir þessu
þá að öðru: Ísland - Svíþjóð
- ekki var það beysið
þá að öðru: Ísland - Svíþjóð
ekki var það beysið
Grýla féll og grýla stóð
gamla svenska case-ið
Svíagrýla svög var ei
svört nú framtíð virðist
Svíagrýla svög var ei
svört nú framtíð virðist.
Þjálvarana" þessi grei"
þétt við tapið spyrðist.
Hanni Steini, kjaftakvörn,
kominn er á götuna.
Hanni Steini, kjaftakvörn,
kominn er á götuna.
selur ódýrt eigin görn
er að safna'í Löduna.
Af því bensín er svo dýrt
eitt er ráð að stunda
Af því bensín er svo dýrt
eitt er ráð að stunda
Hald'um pyngju, hugsa skýrt
og horskur veginn skunda.
Djöfull er nú dásamlegt
diselbíl að keyra
Djöfull er nú dásamlegt
diselbíl að keyra
Það er alveg yndislegt
aldrei bensín meira
Gunnar sveininn sveitta vann
svörin vissi bestu
Of seinn
Djöfull er nú dásamlegt
diselbíl að keyra
Þó er mér um tungu tregt
að tíunda það meira
Gunnar sveininn sveitta vann
svörin vissi bestu
Um alheiminn hann ætíð kann
allt með gríðar festu
Batteríið búið er
á brauðvélinni minni
Batteríið búið er
á brauðvélinni minni
farðu nú og fáðu þér
frónkex þessu sinni
Halli kóngur heldur við
hellingin af kellum
Halli kóngur heldur við
hellingin af kellum
Fírinn sá í fjórða lið
fæddur er af mellum.
Nú er úti norðanátt,
nístingskalt og suddi.
Nú er úti norðanátt,
nístingskalt og suddi.
Upp'ég tek þá andans mátt
ölið kalt og ruddi
Nú er komið kuldaskeið
kólnar jörðin óðum
Nú er komið kuldaskeið
kólnar jörðin óðum,
snæfi þakin Skjaldarbreið
Snæfell þakið móðum.
Strumpar eru strumpa þjóð
strumpast litlu greyinn,
Strumpar eru strumpa þjóð
strumpast litlu greyinn,
strympa oná strumpi móð
strumpast litli peyinn
drekkum ljúfa dropann nú
drýpur vel af flöskum
Drekkum ljúfa dropan nú
drýpur vel af flöskum,
guða veigar oss veitist sú
vín með sveinum röskum.
Kátir gerast gangnamenn
er glóir vín í flöskum,
Kátir gerast gangnamenn
er glóir vín í flöskum,
lýjast seint ef leynist enn
landi í hnakktöskum.
Allt stopp?
hér er fyrripartur
Allt er stopp í andans þraut
Algerlega frosið