Bætti Ewing bæði ljóð
botnaði af snilld
Kafaði í kvæðasjóð
Krumlan gild
Drottinn gaf mér glóðarauga
Drottinn gaf mér glóðarauga,
greyið ég.
Þetta er best í heimi hér:
hár í meyjar skauti,
Þetta er best í heimi hér:
hár í meyjar skauti,
ég hjá henni, hún hjá mér
Þetta er best í heimi hér:
hár í meyjar skauti,
ég hjá henni, hún hjá mér
og hún situr á grauti.
Línu vantar ljóta hér,
látum hana koma.
Línu vantar ljóta hér,
látum hana koma.
sjáum hvernig síðan fer
setjum nú á ljóðið ber.
Kvæðið hér var kvalarfullt,
kannski ekki að furða.
Kvæðið hér var kvalarfullt,
kannski ekki að furða.
Orðið hjá þér eiturgult
Kvæðið hér var kvalarfullt,
kannski ekki að furða.
Orðið hjá þér eiturgult
Oní jörð skal urða.
Skabbi og Isak um Stuðla og höfuðstafi.
Stuðlar eiga að standa fremst í braglið... eitt sýnidæmi um hvernig venjuleg ferskeytla skiptist upp í bragliði:
Kasta/ ég fram/ kennslu/stund
í kvæða/gerðar/fræðum
Ath, að í er áherslulaust forskeyti...
Annaðhvort skal vera einn bragliður milli stuðla eða enginn. Sú regla á við um alla stuðlana þrjá. Hér er auðvitað bara átt við stutt vísuorð.
.
góð regla er sú að hafa alltaf stuðul á þessum stað í ferskeytlum (feitletrað og í rauðum lit):
Ávallt stjörnu stuðull á
að standa rétt og fastur
Dæmi:
Rétt stuðlun
Hástuðlun
Skabbi / fjári / skondinn / er
skrambi...
Lágstuðlun
Fjárinn / Skabbi / skondinn / er
skrambi...
Síðstuðlun
Fjári / er hann / Skabbi / skondinn
skrambi...
-------------------------------------------------------
Röng stuðlun (þar sem tveir bragliðir eru milli 2. stuðuls og höfuðstafs, "of langt")
Skabbi / skondni, / fjári / er,
skrambi...
Röng stuðlun (þar sem tveir bragliðir eru á milli fyrsta og annars stuðuls)
Skabbi / fjári / er hann / skondinn
skrambi...
Röng stuðlun (alltaf skal a.m.k. annar stuðlanna vera á áherslubraglið (hljómstigi), þ.e. annað hvort fyrsta eða þriðja braglið (ef fjórir eru í vísuorði.))
fjári / Skabbi / er hann / skondinn
skrambi...
.
í ferskeytlum eiga eingöngu að vera tveir stuðlar í fyrstu og þriðju línu og höfuðstafur í annarri og fjórðu... fleiri stuðlar en það gera ferskeytluna ofstuðlaða...þ.e. Ekki má nota sama staf og notaður er í stuðla, oftar í línu.