Skrefin litlu skekkjast nú
skauta niður götu
þægileg mun þrautin sú
að þamba öl úr fötu
Ef að drekka á einhvern mjöð
ei skal á mér standa
Ef að drekka á einhvern mjöð
ei skal á mér standa
Kóla drakk ég útá stöð
og blandaði í landa
Mæddur er á mánudag
mætti líða betur
Mæddur er á mánudag
mætti líða betur
Saup ég vín á sunnudag
Sið mun halda í vetur
Mánudagar merkir eru
margir hverjir
Mánudagar merkir eru
margir hverjir
En aldrei verður í þá veru,
verk þó berjir.
Ef að bragða blútinn á
best er snemma að mæta
Ef að bragða blútinn á
best er snemma að mæta
Á hausnum eru hárin grá
í heilanum ekki glæta.
Ef að bragða blútinn á
best er snemma að mæta
er þá tekin aftan frá
akfeit heimasæta
voffi gleymdi vísupart
að veita okkur hinum
Góðan býð ég gumum dag
grislíngum og fraukum
þó af því tæpast hafi hag
hausts að fagna laukum
keðju viljum varla slíta
vonum að hún haldi
Góðan býð ég gumum dag
grislíngum og fraukum
Óðinn sýð já auman brag
íslenskum með laukum
voffi gleymdi vísupart
að veita okkur hinum
ekki setti á skjáinn skart
sker við nögl hjá vinum
of seinn
keðju viljum varla slíta
vonum að hún haldi
eftir þessu allir líta
eigum skjás á tjaldi
Þráður heill nú hangir
Hömrum járnið
Kanilsnúða kunna þeir
Í Kúala Lúmpúr að baka
og karfaflykkin mjúk og meyr
í Máritaníu þeir flaka
ég þolekki Adis Ababa
- aldrei meikað hana
iss þetta stuðlar nú ekki einu sinni hjá mér - þess vegna þoli ég ekki Adis Ababa!
ég þolekki einhenta apa
- aldrei meikað þá
ég þolekki einhenta apa
- aldrei meikað þá
skárra mér fyndist að skapa
skírlífisþrá
--
Ég brá mér á Baggalútsglamur
og bjórinn þambaði hratt
Ég brá mér á Baggalútsglamur
og bjórinn þambaði hratt
Já ég er við sjálfan mig samur
Senn mun halla' undir flatt
Bjórinn Gull er gæða bestur
ef gleypist kaldur
ég þolekki einhenta apa
- aldrei meikað þá´
boxlotu týpiskir tapa
take them now.
Tedda elskan trúðu mér
ég tekinn var með valdi
Er ég nokkuð of seinn?
Bjórinn Gull er gæða bestur
ef gleypist kaldur
Ef í heimsókn arkar gestur
opnast hann sem galdur
Einhverntíman einhversstaðar
ælir hundur.
Einhverntíman einhversstaðar
ælir hundur
einhersstaðar hamast hraðar
hér kom brundur.
Sparið ekki sperrtan lim
sprautukraftinn nýtið
Sparið ekki sperrtan lim
sprautukraftinn nýtið
sæðiskornin fljót og fim
fram úr honum snýtið
djöfull ertu dónalegur
djöfull ertu klúr
Djöfull ertu dónalegur,
djöfull ertu klúr.
Í andskotans nafni agalegur
andskoti var hún súr.