Örlítil ofstuðlun, en hvað um það...
Geitaostur, gauda, brie
gamalt rauðvín, kerti
Fer ég þá á fyllerí
finnst ég mikill verti.
Vertigo er lítið lag
með Líka Þú
Þar er geðveikt gítarsag
úr graðri kú
Geita ostur góður er
gersemi hið besta,
oná brauð mitt bráðum fer
bjargræðið hið mesta.
Alltof seinn
Q- ef -gildið kanntu á
krónur muntu græða.
Aurasálir aurinn þrá
ef aðrir fá að blæða.
ætti þetta ekki að vera skyldulesning í viðskiptafræðinni?
Blæðir mér úr sálarsári,
sjáið hve ég vesæll er.
Það er sem einn ansans ári
innan rífi hjarta mér.
Mér á sama ekki er,
elsku vinur kæri.
Allar saman sendi þér,
samúðarkveðjur færi.
Færi ég þá fjandans til
fyrir allar aldir
ef aldrei hefði eldsins yl
ævidagar taldir
Taldir voru tölvupóstar
til Jónínu og einnig frá.
Þegar plottið ljóta ljóst var
landsmönnum þónokkuð brá.
Brá mér mikið, brá mér nú,
barði ég utan stálið.
Inn á Baggann berst hér nú,
baugshelvítismálið.
Baugshelvítismálið má
Morgunblaðshelvítinu á
sjálfstæðishelvítisfíflin fá
og finna í helvíti, köld og blá.
Blá og marin barðist þá
blessað skinnið,
gapti kuntan hélu grá
gott er minnið.
Minnið svíkur marga drengi
mjög á gleði stundum
Mig hefur vantað mikið lengi
af minningum frá sprundum
Sprundum hnellnum spann ég vef
spraðabassi slunginn.
Stúlkur þessar stungið hef
með stálhart tól og punginn.
Pungurinn er passívur
pinninn fær að vinna
mikið er hann massívur
milli fóta minna
Minni þig á góði minn
mikið ertu graður,
fyrir þessu sjálfur finn
en folinn hann er staður!
Staður þar og staður hér
stúlku með að sofa
Mikilvægast samt finnst mér
mey að morgni lofa.
lof þú meyna morgni á
mey skal óður sunginn
leyfðu mér að liggja hjá
og lofa heldur punginn
Punginn svarta hnuðlar hann
hreikinn mjög og glaður,
fiðring þá í lóknum fann
fjaskalega graður.