Barði hnefi bæverskur,
blítt er féllu snjókornin,
hurð á læknis hæverskur;
hreinsa vildi líkþornin.
næst: hold, glaðbeittur, stjarfur, orm
Glaðbeittur stjarfur gleypti orm
greip í holdið mjúka,
þeitist út í þrusu storm
þreittur til að kúka.
Næst,. Örvar-, nikka-, kátur,.Sindrabær
Örvar sína nikku slær
sérlega kátur maður.
Núna sæll er Sindrabær
Svona nýmálaður
Næstu orð
Sjór - bátur - stúlka - rok
Sé ég í rokinu sjóinn.
Siglir þar bátur til hafnar.
Þéttingsfast klappa á þjóinn.
Í þaranum stúlkan mín kafnar.
Næst:
metfjöldi - Hvannadalshnjúkur - lækkar - forsætisráðherra
Vil ég að forsætisráðherra fjúki
forarpytt ofan í
Af lágum og lækkandi Hvannadalshnjúki
lát metfjölda fagna því
Spjátrungur-borgarstjóraefni-sjónvarp-flugvöllur
Spjátrungur-borgarstjóraefni-sjónvarp-flugvöllur
Spjátrungur í fletið fór
flugvöll sá í svefni
Burt úr sjónvarpsbyljukór
fór borgarstjóraefni.
Hani-krummi-hundur-svín
Hani-krummi-hundur-svín
Galar hani hávært því
hundur stökk á prikið
Krumminn sæll þá kroppar í
krásarsvínaspikið
Hestur-mús-titt-lingur
Hestur ber á baki titt
brokkar afar slyngur
Lagar aldrei útlit sitt
eitraður mús-lingur.
skór, húfa, brók, bolur
Neðst er skór. Já, næstur jörð
nokkru ofar brókin.
Þá bolur yfir beltisgjörð
brall- er -húfa' á lókinn.
henda - benda - senda - fæti
Lítil hnáta snjó vill henda
(hleypur svo burtu létt á fæti)
Í hurðarspjaldið, spá og benda
hamast, atatst, bolta senda.
Gras - kú - slægjur - vatn
Yfir grasið æðir frú
allar slægjur bítur sú.
Ætti ég þá eðlu kú
eigi héld´eg vatni nú.
ánægður - rigning - bekkur - ljós
feginn út í fjós ég stekk
fyrir utan rigning lemur
legin eftir ljósabekk
ljóskan sem að ánægð kemur
(okkur ágætlega semur)
ofn - vinkill - gaman - hringur
Það gæti verið gaman
að velkast í stórum vafa og vinkil
víst dafnar sæta daman
dregur ofn Hringur, hér um bil
Kennslu-sat-líknarmál-Miðnesheiði
Kennslu-sat-líknarmál-Miðnesheiði
Sat við kennslu karlatál
kuntur með til reiðar
ljót þau þykja líknarmál
lostans Miðnesheiðar
Sundmagi-skör-budda-neisti
Úr sundmaga var búinn til budda
besta varskjóða í leisti,
skörðótt í roki og sudda
stór þar kviknaði neisti
Næst,. Hrammur,. loppa., gæs ,.kútur,
Hrammurinn sat heill í gæs
og loppa hart að sótti
kúturinn hann rak upp kvæs
er kæfður var hans flótti
næstu orð: gámur, lyfta, fjall og pollur
Gámur einn í gríðar polli
geysist með lyftu upp á fjall,
hanga þar í kulda hrolli
Haraldur og Högni snjall.
Næst,. Hrútur ,. smali,.. Snati,. lækur.
Hrútur og hneggari kátt,
hér er og smali sprækur
Snati frýsar heldur fátt
Finnst eigi rennandi lækur.
Gjörð - Hingur - morgunhani - festi