Góð lexía, Barbapabbi.
Barbapabbi yrkir enn
eins og bestu skáldin.
Mér er sagt að svona menn
sáust býsna oft í denn.
Skjáinn mænir maður á
mikinn hluta ævi.
Þó er sjaldnast þar að sjá
það sem gagnast neinum má.
Má ég segja sögu hér
sæmilega blauta
Asnaðist í útihver
Ákavíti'drakk nokkuð ber.
Hann er stærri en stendur til
Stelpur þó að flissi
Migið hef yfir Merkigil
Mörgum þykir koma til
Berar konur, brennivín
og bjór í flösku grænni,
er nú komið inn til mín
enda er ég nautnasvín.
Við hunzum heimalninginn enda rauf hann þráðinn
Villt ég stunda víða geim,
vaki allar nætur.
Riðið hef ég rökkum tveim.
Raun var þá að koma heim.
Laglegt, Bölverkur, en við hvaða þráð ert þú að spinna?
Eru allir orðnir spinnegal hérna?
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Úps, Tobbi ruglaði mig með frábærri vísu. En here I come:
Svín er diski ógeð á,
ekkert til að éta,
þessi dýr samt þvöl og hrá
þó á fæti taka má.
Mátti hana horfa á
henda af sér klæðum
upp og niður ligga lá
og´lokasprettin aftanfrá
Aftan frá ég Rósu reið
í ráðhúsfundarsalnum
Þar hún berrössuð mín beið
og beindi mér á rétta leið.
Aftan frá ég Rósu reið
í ráðhúsfundarsalnum
Þar hún berrössuð mín beið
og beindi mér á rétta leið.
Leiðumst saman ljúfan mín
leggjumst bæði í grasið.
Njótum ásta unz dagur dvín
drekkum öl og brennivín.
Brennivín er býsna frjótt
bæði kvölds og morgna
búið hef til barnið ljótt
blindfullur í fyrrinótt
Fyrrinótt var ágæt ein
öðrum nóttum betri
einskis kenndi mér ég mein
mátti lúin hvíla bein.
Bein er gata glötunnar
geng ég eftir henni
gleði finn ei götunnar
gestur er ég jötunnar
Sigurlína súlumær
siðspillt, fríð og nakin
þúsund krónur frá mér fær
fái ég að koma nær.
Úps, átti að byrja á síðasta orði síðustu vísu.
Jötu lagður einn var í,
af því fékk hann kláða.
Héngu þrjú á himni ský
og hlógu bara dátt að því.
Þvínæst koma þessi hér
þónokkuð velkveðnu
stikluvik, sem vísast er
að verði síðar eignuð mér.
Mér verður seint af stóli steypt
sumir vildu það reyna
minn úrgang hafa í sig gleypt
nagla í eigin kistu keypt