Haha - ég spilaði þetta lag um helgina. Ásamt fleirum með þessari góðu sveit. Sníkti áfengi í staðinn fyrir þá skemmtan.
Já.. þú lést mig einmitt fá það á heilann svo ég fór heim og niðurhalaði því.
Jei! Ég breiddi góðum boðskap. Fæ örugglega prik í kladdann einhvers staðar fyrir þetta.
Já.. og hugsaðu þér hvað þú gætir fengið mörg prik ef þú kynnir í raun á græjurnar þínar.
Hey! Þetta hafðist að lokum!
Ullar
Vanþakklæti er þetta ...
Þá vappa skaltu í Víðihlíð, í Víðihlið, í Víðihlíð og vertu þar síðan alla tíð, alla þína tíð.
Ég hlýði á eina af heilræðavísum Megasar. Ekki til traustari ráð en ráð frá Megasi.
Að auki eru nokkur lög með Fleetwood Mac, þ.e. Fleetwood Mac áður en það varð metnaðarlaust miðjumoðsrokkband og Peter Green var upp á sitt besta. Þá var þetta frábært blúsband.
No Road is the Right Road. Yndislega kitlandi lag, söngkonan Christie McVie tekur lagið með sveitinni og úr verður þessi líka heita og ljúfa blússálarballaða. Peter Green er hættur hér og áhrif hans í hljómi sveitarinnar fara þverrandi, þau eru samt næg til að lyfta laginu á æðra plan.
I'm On My Way. Christie enn við fóninn, frábært lag.
Black Magic Woman. Peter Green syngur lag sitt sem Santana gerði ódauðleg. Útgáfa hans er engu síðri.
Þrjú orð, ein goðsögn: Stevie Ray Vaughan.
Hrotur, og ef eyranu skjátlast ekki þá er þetta ca. sirka 115 des.
Nú hlusta ég á nýju plötu White Stripes, Get Behind Me Satan.
Ansi góð plata, og myndin á umslaginu heillar mig.
Revolver eins og hún leggur sig.
American Idiot eins og hún leggur sig!
Engar áhyggjur ljúfan - Strandarpiltarnir.
Himneskar harmóníur.
Mull of Kintyre með Paul McCartney. Einstaklega ljúft og skemmtilegt lag.
Mikið væri gott ef þið munduð hlusta á Jim Noir. Hann er einstaklega hress.
Hlusta áfram á það sama og síðustu full marga daga. Hátíðni hljóðið sem suðar í eyrum mér allan sólarhringinn... Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Rainbow - Since you've been gone
Dansar
Mrs. Robinson ...
... heaven holds a place for those who pray - hey hey hey ...
Ég mæli með að þið hlustið á ýmis frekar ný lög í útsetningum Nonna Klink (Johnny Cash)