Bill Gates á risastóran hluta af Apple enn þann dag í dag auk þess að eiga Microsoft svo hann er eiginlega í samkeppni við sjálfan sig. Það er nýstárlegt og skemmtilegt að vera í samkeppni við sjálfan sig með mismunandi aðferðum í sitthvoru fyrirtækinu og getur því séð betur hvað virkar best.
Brosir útí eitt
Bill var bara hönk á sínum yngri árum.
Síðast þegar ég heyrði klappað í bíó var þegar Bill Gates var skotinn í South Park myndinni.
hehe
Ég tel að fleiri mættu taka til fyrimyndar athanfnaskáldið Villa Hliða, hanne rbúin að gera það helvíti gott blesasður.
hehe
HÆTTU AÐ SKRIFA ÞEGAR ÞÚ HLÆRÐ, ÖFUGUGGINN ÞINN!!!
Ljómar upp eftir að hafa losað við pirring sem hefur safnast upp seinustu dagana
Bill var bara hönk á sínum yngri árum.
Á einhvern einkennilega pervertískann hátt þá er ég sammála þér... ætli ég sé með nördablæti?
Hugsar sinn gang
Ertu ekki bara svona til í tuskið?
Skoðaði þetta eiginlega ekki neitt í gær og sá ekki að það væru komnar 2 blaðsíðurRoðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
annars við Steinrík
æji gaur, hvað er málið. Og nei ég er ekki 11...sagði bara hehe því að ég vildi að fólk héldi að ég væri eitthvað alvarlegur og svo var ég að testa hvort þú myndir bregðast við eins og þú gerðir þegar ég sagði haha!
Ég nenni ekki að benda á ónákvæmnina í innihaldi upphaflega innleggsins. Ekki nenni ég heldur að telja upp stafsetningarvillurnar. Þetta vil ég þó taka fram:
Gestapó er vettvangur til að endurheimta kraft tungumálsins. Ég er einn þeirra sem telja flesta komna í öngstræti þegar að því kemur að lýsa hugsunum í orðum.
Á árum áður rituðu menn heilu bréfin án þess að skrifa "hehe", "haha", tvípunkt-sviga eða nokkuð annað í þeim dúr. Þrátt fyrir það komst merkingin til skila - og tilfinningarnar líka. Ef þú telur þig þurfa að taka fram að þú sért að rita á léttum nótum með einhverjum slíkum ráðum, ráðlegg ég þér að endurorða heldur það sem þú skrifar. Ef það reynist erfitt legg ég til að þú lesir meira en þú skrifar í einhvern tíma.