Hvað segið þið um það?
Er rétt að ungdómur Íslands sé á hraðri leið til málfræðilegrar glötunar í kjölfar textavæðingar farsíma, rafpósts af veraldarvefnum svokallaða sem og allrahanda textaskilaboða? Svo ekki sé minnst á margítrekaðan og illþolandi skort á leshæfum þýðingum á sjónvarpsefni?
Þó ekki sé aldinn að árum (miðað við þorra þjóðarinnar) þá áskotnaðist mér sú blessun að foreldrar mínir tóku mig illilega til bæna ef mér varð það á að tala slæma Íslensku. Nú í dag bý ég að þessari uppeldismeðferð sem að ég vil kalla sem svo, en ef að ég er að tala við ungdóminn og verður það á að leiðrétta málfarið, þá er svarið ýmist upp á engilsaxnesku ("Who cares") eða það er horft á mig eins og ég hafi gert eitthvað dónalegt.
Hvað á að gera? Flengja alla undir einhverjum aldri, svona bara upp á öryggið? Koma á fót Íslenskunámskeiðum og skylda landsmenn til mætinga á 5 ára fresti, og ef menn falla, þá senda þá til Færeyja? (Ef það væri gert, hvað þá með námskeið í stefnuljósanotkun og umferðarmenningu?)
Eða kannski koma skólakerfinu á réttan kjöl aftur?
Er ekki annars réttara að segja að dagarnir séu taldir?
Flissar gríðarlega
Það er í það minnsta nokkuð öfgafullt að halda því fram að dagar kunnáttu séu taldir. Stekkur hæð sína
Auðvitað má maður að leiðrétta unglinga sem tala vitlaust, who cares þó þeir móðgist.
Já, einhver verður að halda uppi aga á þessu liði og kenna þeim góða siði. Svo fer það alltaf gríðarlega mikið í taugarnar á mér þegar fólk talar vitlaust mál. Það er nánast eins og að reykur liðist út um eyru mín.
Alveg er ég sammála þér, en að vísu missi ég stundum út úr mér einhverja vitleysu, en það telst ekki með.
Það er í það minnsta nokkuð öfgafullt að halda því fram að dagar kunnáttu séu taldir. Stekkur hæð sína
Auðvitað má maður að leiðrétta unglinga sem tala vitlaust, who cares þó þeir móðgist.
Ég vil nú samt benda á að það eru ekki einungis unglingar sem tala vitlaust þó svo að þeir séu í miklum meirihluta.
Ég vil nú samt benda á að það eru ekki einungis unglingar sem tala vitlaust þó svo að þeir séu í miklum meirihluta.
Það er mikið rétt.
Já, það er alveg rétt hjá þér Tigra, enda var ég að vísa í fyrsta innleggið með þessu svari mínu. Það getur verið nokkuð pínlegt að standa frammi fyrir því að spá í hvort maður eigi að leiðrétta ömmmu eða ekki.
[...] Þó ekki sé aldinn að árum (miðað við þorra þjóðarinnar) þá áskotnaðist mér sú blessun að foreldrar mínir tóku mig illilega til bæna ef mér varð það á að tala slæma Íslensku. [...]
En þér var aldrei kennt að skrifa hana?
Samkvæmt sk-reglunni er „íslenska“ ekki með stórum staf.
Þar að auki fannst mér „tala slæma íslensku“ ekki alveg virka.... það er eitthvað við þetta „slæma“...
Starir þegjandi út í loftið eru allir farnir að lúllaKlórar sér í höfðinuBrestur í óstöðvandi grát
Starir þegjandi út í loftið eru allir farnir að lúllaKlórar sér í höfðinuBrestur í óstöðvandi grát
Nei, en stundum er best að leika dauðan
Samkvæmt sk-reglunni er „íslenska“ ekki með stórum staf.
Þar að auki fannst mér „tala slæma íslensku“ ekki alveg virka.... það er eitthvað við þetta „slæma“...
Ég tek þessar aðfinnslur til mín og viðurkenni þessi málfræðileg mistök, kenni því um að ég las textann ekki nógu vandlega yfir áður en að ég sendi hann. Samt dálítið kaldhæðnislegt. Brestur í óstöðvandi grát
Hitt stend ég þó við, sem er aðalmál textans, að málnotkun hérlendis er frekar á undanhaldi. Frétt í Morgunblaðinu fyrir skemmstu bendir einnig á að bókalestur sé á undanhaldi. Þykir mér það slæm frétt. Mér þykir vænt um íslenska tungu en ég er ekki, frekar en margir aðrir fullnuma í henni.
"Dagar íslensgukunátunar eru talnir", ég ætla að vona að þetta sé grín.
maður á aldrei að fara yfir eitthvað í huganum þegar að maður er búinn að ýta á enter