Bögu verpti, bæklað'r allri:
Býsna sendinn leirinn.
Henti þúsund heilum kalli,
hélt í grænan eyrinn.
Eyrinn öngvann á eg nú
allur er hann horfinn
Tómt er nú og tæmt mitt bú
tættur maður, sorfinn.
Sorfinn vindi og veðrum er
Vamban mjög í framan.
Furða mikil finnst það mér
hve fast hann hangir saman.
Saman held mér helst til oft
held að það sé kostur
Alldrei frá mér líður loft
landið vort er ostur
smá öfugmælavísa
Ostur, vín og ástarber,
Ásta er ber frá hásin.
Varla fyr það verri er
að vera öll uppblásin.
Helvítis. Það er eitthvað að þessu og ég get ekki greint hvað það er. Er það fyrriparturinn sem er einfaldlega of dýr miðað við hinn tiltölulega lafandi neðripart?
Upp er blásin eins og lásinn
enn er krásin inn í mér.
Flýgur gásin finnur básinn
fótarhásin bólgin er.
Ergelsi og annað puð,
úfið skap og leiði.
Ákallaður elsku guð
er af sama meiði.
Meiða ekki máttu.
Mannasiði áttu.
Grunda góða háttu.
Glímdu ei um náttu.
(Úff... í þessum töluðu orðum sá ég að það er kominn tími á mig. Gaman að sjá þig kæri Hildisþorsti.)
Nonna mín svarar svakalega fallega
Náttu helgum norðurljós.
Núpi heilsar kveðjan.
Auðvitað þá upp í Kjós,
eða Helgi Seljan.
Seljanlegt mitt sálartetur
sýnist mér ei vera
í snatri þennan vímu-vetur
verð ég upp að gera.
Gera verður fleira en flott
flestum myndi þykja
þannig orðið getur gott
gröftur, skyr og mykja
mykja svikinn svörðinn á
svalar hungri grasa
þykja skondin skörðin hjá
skinni gerðum vasa
Vasa í mína vísast fer
vonast eftir krónu
kramið finnur krækiber
og krumpaða jónu
Jónu þykir jafnan best
að jaga sér á belli.
Eitt sinn tæld'ún pokaprest
pent sem rann á svelli.
Svellið heima' er svakalegt
svínvirkar á jólunum
Á sumrin er það undarlegt
þá of hlýtt sé á pólunum
pólunum vendi snar ég sný
snöggur málin laga
hjólunum lendi léttur því
lipur alla daga
gymbrunni sjaldann voðina slær
spenana strýkur golan mjúk
safinn liðast mjúkur og tær
ofaní tunnuna gildu
[obbobbobb... þú fylgir ekki þræðinum og svo er þetta hrikalega lítið og illa stuðlað og rímað... Skabbi]
Í holunni liggur gildran gleið, hún er ekki neitt stressuð
bíður eftir bráðinni,klemmur hana og drepur
[og þetta er bara út í hött... Skabbi]