Gullinn og svalandi Viking pils-bjór.
Er það nokkuð þungt?
Nei en úr því að þjer nefnið þetta væri athyglisvert að mæla áhrif þess á líkamsþyngdina að drekka eingöngu þungt vetnisoxíð er svo innihjeldi líka eingöngu 'þunga' súrefnisísótópa Starir þegjandi út í loftið.
Kaffi ? Er það eitthvað skylt vetnisoxíði ?
Fer það ekki eftir því hvernig hellt er upp á? Vinur minn einn hellti alltaf upp á kaffi sem var miklu skyldara malbiki en vetnisoxíði. Afi kallaði kaffið alltaf svartbaunasafa.
Kaptain morgan í fanta free... drekkandi en ekkert spes... Maður verður þó fullur af þessu Ljómar upp
Ekkert til nema vatn og vatn er vont. Frekar vildi ég fá almennilegt tannskemmandi tjöruhreinsandi kók.
Ég þvæli ofan í mig dönskum appelsínusafa. Það segir nú ekkert um það samt á umbúðunum hvort appelsínurnar séu ræktaðar í Danmörku.
Drasl.
-
Eitthvað þynnkuvekjandi væri gott en ég er nú bara í mínu eigin munnvatni sem stendur
Heldur um höfuð sér og rær í gráðið
Eitthvað sem kallast alkaseltzer... ekki er það að virka á þessa þynnku
Brestur í grát en þá versnar hausverkurinn bara og hún hættir skyndilega
atrix handáburð með kamillu ilm
Glas af vel kældu Prosecco, í tilefni þess að ég var að ljúka tveimur erfiðum verkefnum Gefur frá sér vellíðunarstunu