stekkur inn á harðaspani og syngur með Hexiu DANSA, HVAÐ ER BETR'ENAÐ DANSA áttar sig á alvarleika málsins og skiptir um lag SJÚDDIRALLIREI OG SJÚDDIRALLIRA Á FLOSA ÓLAFS ER SKO LÍF OG FJÖR snarþagnar, lítur í kringum sig og sest niður, pantar einn lítinn blút takk...
Grípur tvær tíulítrakrúsir og fyllir af blút og röltir til Ívars og tyllir sérJæja kallinn. Skál! Ljómar upp og sýpur á
gengur hæversklega inn og pantar Blút Sælir kappar!
skálar við Galdra og sýpur duglega á Meiri fjöldasöng?
Sjúddirallirei
sjúddirallira
hvað eigum við að syngja núna?
syngur við raust
Lækur tifar létt um máða steina,
lúin ýsa geyspar svaka hátt.
Halakarta hoppar eins og kleina
með höfuðið svo undur, undur blátt.
Ánamaðkur ýlir eins og flauta
Engispretta býður góðan dag
Bananafluga bindur á sig skauta
Bjöllusauður raular lítið lag.
skálar við viðstadda
SKÁL!
BJÓR!
hoppar um og fær sér bjór
Bíddu er þeyya ekki ú Sval og val?
Skarplega athugað. Þetta er einmitt út ,,Neyðarkalli frá Bretzelborg", ef mér skjöplast eigi.
Og þetta er sko bráðskemmtilegur útúrsnúningur og býsna þokkalega kveðinn.
Gaman af þessu. Gæti ég fengið Blút.
Við ættum að samþykkja þetta sem vorlag Baggalútíu með lögum. Einnig væri hægt að gefa þetta út á plötu og gera myndband við.
Skál!
Röltir inn
Nú eru allir fullorðnu áfengissjúklingarnar þambandi í sig á einhverju „kombakki“. Fuss, segi ég.
Tautar og röflar
Langt síðan ég hef kíkt hér inn... fær sér blút