Við erum öll í nefndarstörfum innan félagana, launin eru nákvæmlega þau sömu og félagsgjöldin.
-
Júlli minn... það eru engin félagsgjöld.. og já þú mátt vera með.. ekki ertu beint Metrósexúal...
Já, það hljómar að vísu ekki svo illa. Þetta er fyrsta vitræna félagið sem hefur verið stofnað hér í langan tíma. Ég vil þá gjarnan sækja um nefndarstarf, því það er óhæft að fara með fjárhaginn í vaskinn fyrir eitthvað félag.
Metrósexúelt þenkjandi karlmenn eiga lítið skylt við heimsborgara og þarf raunar að útrýma þessu fyrirbæri sem fyrst. Annars er það næsta víst að náttúran sér best um sig sjálf og verða þessir vesalingar sennilega sjálfdauðir. Síðan er það líka ljóst að þessir menn eru lítt þenkjandi.
Er metróisminn ekki bara öppdeituð útgáfa af því sem stundum er kallað "choko"?
Choko er ógeð!
Alvöru karlmenn, það er það sem við konurnar viljum, enga svona Brad-Pytti
Nei, ég get ekki verið sammála því, þeir vesalingar voru ekkert að reyna að vera neitt annað en þeir, já, voru/eru.
Menn eiga bara að horfast í augu við það ef þeir eru öfugir, ekkert athugavert við það, en koma a.m.k. hreint fram. Reynir að forðast fljúgandi hluti á leiðinni af sviðinu.
Eru appelsínugulir hnakkar ekki það sem konur vilja?
Blindast af hinu augljósa
Steinríkur virðist hafa tengt þennan þráð saman við þennan (http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=4182) með ágætum árangri. Spurning um að slá þeim saman í einn stóran?
Hérna...ehemmm...sko..ef maður hefur gert það í Metró ,(neðanjarðarlest t.d. í Brussel) er maður þá Metrósexúal?
Nei nei... þá ertu Undergroundsexúal.
En það getur líka átt við viðurstyggilegann pervertisma sem þrífst aðeins í niðurgröfnum neðanjarðarholum...
Fölnar upp
Fíflagangur!! ertu perri??
Held hann sé nú bara að fíflast... annars veit maður aldrei
Tjahh. Þegar ég var ungur var metróinn (lestin sjálf) í Brussel snyrtilegur og á köflum afar fámennur, öfugt við smekkfullu svitafýlublikkdósirnar í París eða Undergroundinn í London. Jafnvel má sjá mosaikmyndir af belgískum teiknimyndahetjum út um gluggann á leiðinni. Þarna gefst því næði til rómantíkur og leikja ef hugarfarið er rétt. Það má svosem vel vera að ég sé perri........
Er metróisminn ekki bara öppdeituð útgáfa af því sem stundum er kallað "choko"?
Jú ég held að það sé nefnilega málið. Og nú eru þeir allstaðar!!
Ég er ekki að tala um að menn eigi að anga af svitafýlu, klóra sér í pungnum á almannafæri og hlaupa á eftir kvennfólkinu með lurk til að draga það inní bælið sitt.
Má ég þá biðja um einhvern milliveg!!
Strípur, brúnkukrem og litaðar augabrúnir eru bara ekki að gera sig fyrir minn smekk á karlmönnum!! Allavega ekki allt þrennt í einu.
Þetta er það sem hefur átt sér annan samnefnara með chocko og metrósexual og það eru EFFEMM-HNAKKAR eða SELFOSS-HNAKKAR! Það er meira og minna þarna Árnessýslu og Rangárvallasýslu heilkennið sem er að skekja karlmennsku ímyndina. Við krefjumst úrbóta! Bann við sölu á brúnkukremi, strípum og gauraglysi. VIð viljum vetrarkeðjur um hálsinn, smurolíu á húðina og tjöru í hárið!
Gemmér alvöru rokkara eins og í gamla daga!!
Hva ... eins og svona?
Slammar og sveiflar hári