Hvað skal gefa hver er mjer
hvunndagshetjan sanna
Beindu sjón að sannri þjer
sálu þína kanna
Syndir eru salt í kaun
sögu þína blúsa
Syndir eru salt í kaun
sögu þína blúsa.
Mörg á ævi manns er raun:
meyjar, öl og spúsa.
Viltu kaffi, karlinn minn
og konfektmola líka?
Viltu kaffi, karlinn minn
og konfektmola líka?
Brandítár í bollann þinn
og -bollu rjóma slíka?
Aldrei hefur áður gerst
örlög sundur leysast
Viltu kaffi, karlinn minn
og konfektmola líka?
En kannski sníkja ert kominn
koníakið ríka.
(of seinn)
Þorláksmessuskatan þráa
þykir undraverð
Aldrei hefur áður gerst
örlög sundur leysast.
Múrar hrynja menning ferst
miklir skarar geysast.
Þorláksmessuskatan þráa (hér er of langt á milli stuðla)
þykir undraverð.
Eg vil hana eta hráa
eg er af þeirri gerð.
Viltu tefla skyndiskák
skora ég á þig.
Viltu tefla skyndiskák
skora ég á þig.
En mín geta er hálfkák
ekki benda'á mig
Skora þú nú einhvern annan
á að tefla skák.
Skora þú nú einhvern annan
á að tefla skák.
Tóm er núna kaffikannan
kaldan þor við lák.
Týnd er nú og tröllum gefin
trú á rússagrýlu
Týnd er nú og tröllum gefin
trú á rússagrýlu
Steytt að mönnum hers er hnefinn
þeir hópa sig í fýlu.
Starir þegjandi út í loftið
Kennararnir kætast nú
komið jólafríið
Kennararnir kætast nú
komið jólafríið,
Halda um sitt heilabú
og hlaða batteríið.
Prúðbúnir þeir pakka fá
presti frá og lækni
Prúðbúnir þeir pakka fá
presti frá og lækni.
Fyrripartafantur má,
forðast lygasækni.
Júsjenkó er jafnhress þó,
jafna ætti um kallinn.
Júsjenkó er jafnhress þó,
jafna ætti um kallinn.
Næstum úr díoxíni dó
dálítill á kosningum gallinn
Öllum vér nú óskum
ákavítisjóla
Öllum vér nú óskum
ákavítsjóla
þrjótar ásamt þrjóskum
þamba Coca Cola
Nautnaríkt og notalegt
nýja árið verður
Nautnaríkt og notalegt
nýja árið verður
allt um líkt svo unaðslegt
gamla árið kveður
Næsta ár svo notalegt
nú skal tekið á því
Næsta ár svo notalegt
nú skal tekið á því,
stöðu mæla færðu segt
siðan kemstu í frí.
Tæpt er orðið tímatal
tíðin fer að skána,
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Tæpt er orðið tímatal
tíðin fer að skána,
Hvaðan kemur þetta hjal
Hefur þú séð spána?
Veruleikinn verður vart
Verri en við þekkjum[/code]
Veruleikinn verður vart
verri en við þekkjum,
gamlar konur muna margt
margar unnu á stekkjum.
Lífsins blessuð senn hækkar sól
skammdags drungi líður,
Veruleikinn verður vart
verri en við þekkjum
lítum í huga lífið bjart
losnum úr sálarhlekkjum.
Fljótur ykkar flækjur leysi
flóknari virðast mínar
Of seinn. Þetta hefði átt að standa þarna lengur.
Lífsins blessuð senn hækkar sól
skammdags drungi líður,
Góðan daginn, gleðileg jól
Gamla bokkan bíður.
Heyrðu núna heillavinur
hafðu af því gott