Ætli ég þurfi ekki að fara hlusta á þennan leiðindakennara hvað og hverju.
Þráðlaust internet er yndislegt fyrirbæri.
Hakuchi !!! Hvað er að sjá þessa nýju mynd - ekki gott - kann betur við þann gamla - það var sko hættulega sexý týpa...
En ég er að hugsa um að fara á klósettið, fá mér kannski sígó og fara svo að læra, þ.e. ef þessar beyglur á næsta borði þagna einhvern tímann...
Þetta er reyndar sami maðurinn. Já hún kemur ekki eins vel út og ég haðfi vonað. Hefði viljað sjá meira af höfði mínu.
AND*******
Ætla þessar beyglur aldrei að þagna. Getur kvenfólk ekki lært að silence is golden !?!? Mér er alveg slétt sama um kærustuna hans Tomma og myndir sem Guðbjörn tók í Boston - Lækka um nokkur desíbel ! TAKK ! Asnar...
Voðalega ertu eitthvað skapstygg í dag. Er eitthvað að angra þig? Annað en jakkafataskipti mín þ.e.?
Nebb - en hefurðu ekki lent í lesstofu á næsta borði við svona píur ? Af hverju fara þær ekki bara á kaffihús ?
Æ, annars var ég að klessukeyra bílinn og svo sakna ég þín í hinum fötunum !
Ég er bara að taka eftir þessu núna, en eru ekki flestir Baggalýtingar frekar höfuðleðursfátækir? Veltir þessu fyrir sér
Annars er ég uppi í skóla að gera ekkert.. svo er ég að fara að vinna...
híhí var að taka eftir þessu núna - renndi svo yfir myndirnar hér að ofan og þetta er rétt - við gætum öll verið nýkomin úr heilaskurðaðgerð !
[quote="krumpa"]Nebb - en hefurðu ekki lent í lesstofu á næsta borði við svona píur ? Af hverju fara þær ekki bara á kaffihús ?
quote]
Þetta er reyndar mögnuð félagsleg stúdía - önnur bara blaðrar og blaðrar og hin skýtur að einstaka umli - fattar fólk virkilega ekki þegar það er enginn að hlusta ?
Veltir fyrir sér hvernig efsti hluti höfuðsins líti út en man það mjög ógreinilega
Þetta virðist vera almennt hjá okkur á lútnum.. er þetta kannski eitthvað form af heilaþvotti, þar sem efsti hlutinn er máður af?
Eflaust er toppur höfða okkar vera tengdur við einhverjar leiðslur sem eru beintengdar við höfuðstöðvar Baggalútssamsteypuna.
Ég er bara að taka eftir þessu núna, en eru ekki flestir Baggalýtingar frekar höfuðleðursfátækir? Veltir þessu fyrir sér
Annars er ég uppi í skóla að gera ekkert.. svo er ég að fara að vinna...
Ég hef allt mitt höfuðleður
Montar sig og sýnir hinum
Ahha! En þú hefur engar axlir eða búk, þannig að þar sem þú ert tígrisdýr hefur þú örugglega verið flegin, en þeir bara þora ekki að viðurkenna það, og fela þarmeð kroppinn..
Rugl! Það sést örlítið í framlappirnar á mér.. ég ligg þarna fram á fætur mína.. og ég á sko nóg af feldi! já nóg heyriru!