vont
Skítlegt! Hvernig eiga Bagglýtingar að geta farið út úr húsi í kvöld í þessu óveðri? Svei, þessu slagviðri verður að linna, svo þjóðin fái notið návistarinnar við okkur eins og vera ber á föstudagskvöldi.
Bara að taka fram Nokia (stígvélin) , gamla Maxgallan og regnhlífina - fara svo í bæinn og mála hann rauðan ! Bagglýtingar sem og aðrir Íslendingar ættu að vera hraustari en svo að þeir fari að vola yfir smávegis slagviðri. Það er bara að klæða sig eftir veðri, vera við öllu búinn, og koma hinum almenna borgara upp á alvöru útilegustemmningu í miðbænum á föstudegi !
(annars hljóma nú bók og kakó hreint ekki illa)
Starir þegjandi út í loftið
Kakó má drekka á fleiri stöðum en heimilum. Starir leyndardómsfullur út um gluggan.Er hann kannski bara fullur?
það er prýðilegt þynnkuveður!
dripp dripp dripp
Komið flóð... sýndist ég sjá fisk sigla framhjá glugganum mínum.
hvað er þessi kafbátur að gera úti á götu?
Mikil úrkoma á suð-vestur landinu. 30 millibera lægð leggur til að austan
Jahérna.. stytt upp. Nú get ég loksins farið út með hundinn minn án þess að klæða hann í kút.
Hvurn árann gengur á!!
Það er stórflóð í götunni minni sem skolar burt með sér skólabörnum.
Vill einhver biðja Hakuchi að slökkva á þessari árans veðurmaskínu!