Duck Tales þemað.
Nú erum við að tala saman...
Transformers lagið úr "Transformers the movie", performerað af White Lion
Leitaði eftir fleiri þemum á tölvunni minni, fann Thundercats, Baywatch, Beverly Hills Cop og 90210. Alltsaman eðal lög.
Ram Jam - Black Betty. Eins og svo oft áður.
Er að hlýða á hugvíkkandi sækadelíu frá hippatímanum og ég er bara ekki alveg klár í því hverjir þetta eru, hugsanlega Grateful Dead á skýjaflugstímabilinu....vá! mar! nú ferðast maður bara inn í gítarstrengina sjálfa og tekur sækadelískt sóló....
Placebo - English summer rain.
Var að fá báða Apocalyptica diskana þannig að Hyperventilation er í gangi í augnablikinu. Mjög flott.
Ozzy kallinn hljómar í sjónvarpinu hjá mér núna, ég veit nú ekki hvort ég eigi að vera að mæla með honum núna, en ég er að skemmta mér ágætlega.
Sannar ágæti sitt sem lüft-guitarleikari
-
Sem allra mest með Joe Satriani
Þessu er ég sammála.
Hin al- íslensk-/keflvíska reggie hljómsveit, Hjálmar, eru að standa sig í sínu fagi! Ákveðinn Bob Marley endurfundir í þessari hljómsveit...Starir þegjandi út í loftið
Varúúúð!
Það er svo hált
og vesenið út um allt!
Varúúúð!
Það er svo kalt
þú þarft að reyna að bæta það allt!
Who's that lady - Curtis Mayfield.
Þú hefur greinilega lent í því sama og ég að fá þetta svona merkt af netinu. Í sannleika sagt þá er þetta lagið "That Lady" með soul-funksveitinni Isley Brothers og komst það inn á top 10 á Billboard árið 1973. En , þennan misskilning lái ég engum, enda hljómar sveitin illyrmislega líkt og meistari Mayfield á þessum tíma.
Á þessu andartaki er maður að hlýða á hreint guðdómlegan þátt Dr. Gunna á Skonrokki um útvarpsplötusnúðinn nýlátna, John Peel.