— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra sveita sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 145, 146, 147 ... 455, 456, 457  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Knopfler 5/10/04 21:21

Róinn færist yfir fólk
frekar seinni partinn,
Góðann gamlann byssuhólk
Fékk gefins fyrripartinn

Áttu áttu vinur minn
Áttu líka tíu

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Knopfler 5/10/04 21:26

Vont er til þess að vita
veiða má Rjúpuna,
En Elvis í þessum hita
Eflaust fer á kúpuna

Áttu áttu vinur minn
Áttu líka tíu

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Tobbi heimalningur 5/10/04 21:29

Farðu og veiddu, þar sem þér hentar augsýnilega ekki að búa til fyrriparta :)

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Knopfler 5/10/04 21:31

Einhverstaðar verður að byrja

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
víólskrímsl 6/10/04 11:43

Áttu áttu vinur minn
áttu líka tíu
Ég fae vid fyrripartinn thinn
feykilega klígju

‹heggur á andsk. gordíonshnútinn, uss svona gera menn ekki›

Eigi skortir althingi
andríki og visku

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 6/10/04 11:59

Eigi skortir althingi
andríki og visku
Ráðherra og ræningi
reisir óbelisku

Best er að reisa sér bautastein
ef beðið er ódauðleika

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ég sjálfur 6/10/04 12:51

Best er að reisa sér bautastein
ef beðið er ódauðleika
Kalla síðan á hann Hrein
og mála alla bleika.

Hingað heldur margur maður
hér er gott að vera.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 6/10/04 14:58

Hingað heldur margur maður
hér er gott að vera.
Þetta er bara besti staður
bryðjum áfram stera.

Stuðlasetning stendur vart
stafsetning í lagi.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 6/10/04 17:09

Hingað heldur margur maður
hér er gott að vera,
syngjandi sæll og glaður
svona eiga menn að gera

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 6/10/04 17:16

Örlitlar leiðbeiningar: Það er ágætis ráð að peista fyrripartinum yfir á word skjal á meðan verið er að botna hann. Þá sér maður þegar komið er til baka hvort einhver hafi orðið á undan, eins og gerðist í þessu tilfelli Krummo.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 6/10/04 17:19

Hingað heldur margur maður
hér er gott að vera,
syngjandi sæll og glaður
svona eiga menn að gera.

Geysar stríð í stjórnar liði
sumir vilja annað,

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 6/10/04 17:28

‹Haraldur var á undan þannig að vér tökum fyrripartinn frá honum›

Stuðlasetning stendur vart
stafsetning í lagi.
Finnst oss helvíti hart
að hafa sitt af hvoru tagi

Hér varð rokna ruglingur
rjúkum vér á dyr

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 6/10/04 17:51

Hér varð rokna ruglingur
rjúkum vér á dyr.
Fiðurlausar fuglbringur
fínar út í skyr.

Reykjavík er rokna borg
rok þar sífellt geisar.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Fíflagangur 6/10/04 18:12

Reykjavík er rokna borg
rok þar sífellt geisar
Eitt sinn þar ég ældi á torg
úrgangshraukur reis þar

Einn er maður Ásgrímsson
ávallt brúnaþungur

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Smali 6/10/04 21:20

Einn er maður Ásgrímsson
ávallt brúnaþungur
loksins sinni varð að von
valds- að seðja hungur

Tótemsúla á torgi friðar
túristana lokkar

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Tobbi heimalningur 6/10/04 21:29

Tótemsúla á torgi friðar
túristana lokkar
Legstein hingað lennons miðar
Ljúf er Joko okkar

Ferðamenn hér leggja leið
langar súlu að skoða

 • LOKAР•  Senda skilaboð
Smali 6/10/04 21:50

Ferðamenn hér leggja leið
langar súlu að skoða
falast eftir farmi af skreið
og feitum sperglum, Goða.

Hagur þjóðar vænkast vel
verstu slóðar fitna

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 6/10/04 22:55

Hagur þjóðar vænkast vel
verstu slóðar fitna.
verðlag hækkar víst ég tel
mun voðinn á okkur bitna?
+

Burt með matar skattinn
mest bætir allra hag,

LOKAÐ
        1, 2, 3 ... 145, 146, 147 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: