— GESTAPÓ —
Kveðist Á
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 455, 456, 457
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 23/1/23 10:16

Kinn- ég -hesti kom á stökk
og kraftsins vel þá naut ég.
Viðtakandinn við það hrökk,
víst hann næstum skaut ég.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 26/1/23 17:11

Ég lofa fjárhjúið færa
og forhjúið sem heillar víst alla.
Ég dómshjúið djarfa vil mæra.
Svo dái ég orkuhjúið stór snjalla.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 20/5/23 11:41

Snjallvæðing er fundið fé
fræðir mann og vekur.
Farsími með fjórir g
og fimman yfir tekur.

KauBfélagsstjórinn.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 6/7/23 23:20

Taktu aldrei trúnaðar gögn
og túðra um og birt.
Um heiðrað fólkið hafðu þögn
Hátt það ávallt virt.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 15/10/23 17:51

Virt er flest að vettugi,
veldur renni drullu.
Stigi á sviðið stórhugi,
strokks við kendur bullu.

        1, 2, 3 ... 455, 456, 457
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: