Finnst mér best að fá mér lúr
er fellur sól í stafi.
Fæ er vakna svið úr súr
sem mér gaf minn afi.
Undirörull er ég talin
og einkar lyginn maður
Undirörull er ég tallin
og einkar lyginn maður.
Ef ég segist aftur fallin
er það bara þvaður.
Ofankoman á mig féll
er ég fór til vinnu.
Ofankoman á mig féll
er ég fór til vinnu.
Kaffi á brúsa heitu hell.
Hafðu á því sinnu.
Heima var með vinum mínum.
Vínið drukkum, reyktum hass.
Heima var með vinum mínum.
Vínið drukkum, reyktum hass.
Upp í nefin náðum línum,
nóttin flaug sem saur úr rass-
i.
Oftast þegar á ég vín
annar það skal drekka.
Oftast þegar á ég vín
annar það skal drekka.
Enda fráleitt fyllisvín,
og framkomu hef þekka.
Í fimm mínútur frægur var
er fimmtíu ár ég vildi.
Í fimm mínútur frægur var
er fímmtíu ár ég vildi.
Ég átti við því ekkert svar
og aldrey ég það skildi.
Ljóð mín eru listasmíð
sem litla fá þó hylli.
Ljóð mín eru lista smíð
sem litla fá þó hylli.
Yrki ég þó aldrei níð
og alla hluti gylli.
Ég er ei með hýrri há.
Held ég mig því inni.
Ég er ei með hýrri há.
Held ég mig því inni.
Brosi við mér blómin smá
þá bæta þau mitt sinni.
Ef ég fer um eyðistíg
þá eftir þér ég leita.
Ef ég fer um eyðistíg
þá eftir þér ég leita.
Banginn þá í brækur míg,
og bomsur mun því bleyta.
Enginn getur alla glatt,
ekki er því að neita.
Enginn getur alla glatt
ekki er því að neita.
Ertu nú að segja satt?
Svarið mér skalt veita.
Ef þú styður Bjarna Ben
blessun þú munt hljóta.
Ef þú styður Bjarna Ben
blessun þú munt hljóta.
Það er nokkuð annað en
ásta Gulla að njóta.
Á fundi nú í spil er spáð,
spekingar þar fjasa.
Á fundi nú í spil er spáð
spekingar þar fjasa.
En æ er fínt ef að er gáð
innihaldið staupa og glasa.
Selur Bjarni banka af list.
Bætir þjóðarhaginn.
Selur Bjarni banka af list.
Bætir þjóðarhaginn.
Passar uppápabba fyrst
með pening er hann laginn.
Þenar landsins þorna ei
á þjóðhátiðardaginn.