— GESTAPÓ —
Kveðist Á
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 448, 449, 450 ... 455, 456, 457  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sundlaugur Vatne 25/5/22 00:04

Stútinn totta stundum má
stígur veig til höfuðs þá.
Á annan veg mér eitt sinn brá.
Allt var þá á tundri og tjá.

Varaformaður Sundráðs Baggalútíu, stjórnarmaður Ungmennasambands Baggalútíu, ritari Ungmennafélagsins Andspyrnunnar og 1. varamaður á lista Bændaflokksins í Hreppsnefnd Ýsufjarðar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 25/5/22 11:35

Tjáningin nú tryllir prest
sem telur að nú víst sé best
til vítis fari fyrir rest
fasistanna stjórnarpest.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 25/5/22 22:36

Pestarkýlin klóra ég.
Kláðaverkir svía..
Apabóla er ægileg,
illa veikin nýja.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 27/5/22 09:27

Nýjabrumið nú er af
og nokkuð enn í land.
Ótrúlegt að enginn haf-
i ennþá siglt í strand.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 31/5/22 09:17

Strandaður er ég; storknaði í fjöru
steinum og björgum hjá.
Þytharðir vindar magnandi möru
Meina mér hafi frá.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 2/6/22 05:27

Frá er humynd frá er geð
frá er myrkri handan
"Þessum lítið þætti peð!!"
.......þul´ein hreyttí Mandann

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sundlaugur Vatne 2/6/22 21:30

Dannebrog er danskur fáni,
Danir eru ágæt þjóð.
Þegar fæðist fullur Máni,
frábær kveð ég ástarljóð.

Varaformaður Sundráðs Baggalútíu, stjórnarmaður Ungmennasambands Baggalútíu, ritari Ungmennafélagsins Andspyrnunnar og 1. varamaður á lista Bændaflokksins í Hreppsnefnd Ýsufjarðar
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 5/6/22 22:08

Ástarljóð mörg forðum kvað ég kvendi.
Hún kallaði mig gersemina sína.
En skyndilega skæting hún mér sendi.
Skjátan las víst sjúkraskrána mína.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 13/6/22 10:09

Mína sögu mætti skrifa
morgun- fyrir -kaffi.
Eftir mat svo ætla að lifa
óbundinn af straffi.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 25/6/22 19:37

Í straffi var hann víðast hvar.
Vínið öllu spillti.
Með vögnum ekki fékk hann far.
Fjandinn var með pilti.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 1/7/22 16:23

Pilti góðum pía kynntist,
prufaði að reyna við.
Vel það tókst hún við hann mynntist,
víst þá lífið komst á skrið.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 2/7/22 12:31

Skriðum, manstu, skruggufullir
sköngluðumst loks heim til þín.
Þó áfram þú í solli sullir
sýp ég aldrei framar vín.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sundlaugur Vatne 4/7/22 22:24

Vín ég gjarnan vildi fá
viskí- eða -glas.
Áhyggjur þá engar á
og ekkert mas og þras.

Varaformaður Sundráðs Baggalútíu, stjórnarmaður Ungmennasambands Baggalútíu, ritari Ungmennafélagsins Andspyrnunnar og 1. varamaður á lista Bændaflokksins í Hreppsnefnd Ýsufjarðar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 6/7/22 13:10

Sundlaugur Vatne mælti:

Vín ég gjarnan vildi fá
viskí- eða -glas.
Áhyggjur þá engar sjá
og ekkert mas og þras.

Þrasa ég og þrúkka mjög
um þingleg mál.
Af því fæ ég aukaslög
og auma sál.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 11/7/22 14:12

Sálargáfu sagði ek mína:
"Saman orð að malla".
Skarpur fór þá skati að kíma:
"Skoða rímsins halla".

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 12/7/22 09:56

Halla ég því hurðarás
hef um axlir reistan.
Af því bakið er í lás
og engan finn ég neistann.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 12/7/22 19:37

Neistan kveikti nályktin
Napurt blés á suðurhorn.
Sóttir þú kát þá sigtin.
Þannig fengust nokkur korn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 13/7/22 09:31

Kornið vex að vonum fram
það vænt mun eymast betur.
Af svo mun ég drekka dramm
sem dugar næsta vetur.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
        1, 2, 3 ... 448, 449, 450 ... 455, 456, 457  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: