Það er ÉG sem er YFIRSIGURVEGARI hér
NEI!
Víst!!
Þið unnuð báðir kók og prins.
Skottist nú út af þræðinum og graðgið þessu í ykkur.
Vinnur á meðan
Stekkur hæð sína Vinningurinn er minn, a.m.k. uns annað kemur í ljós... Ljómar upp
Færir ZNÓJ kók og prins eins og hinum gemlingunum
blæs kókinu af borðinu
Vill ekki sjá svona eitur nálægt mér.
Þetta var nú alveg hreint stöff. Engin hægðalyf í útþynningu, sko.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Sigurvegarar þurfa ekki fíkniefni. Nema rússneskir. Og ég er ekki rússi. Held ég.
Finnst þér vodki góður?
Umræðan hjer er er komin út um víðan völl um einhver einskis verð aukaatriði. Það sem skiptir máli er að vjer erum yfirsigurvegari hjer Hyggst sýna verðlaunagripasafnið því til staðfestingar/sönnunar en uppgötvar að vegna þess hve það safn er risastórt er nánast óframkvæmanlegt að ætla sjer að sýna það hjer.
Þú mátt alveg halda þig á þrönga veginum, ég vinn þetta alltaf hvar sem það er.
Umræðan hjer er er komin út um víðan völl um einhver einskis verð aukaatriði. Það sem skiptir máli er að vjer erum yfirsigurvegari hjer Hyggst sýna verðlaunagripasafnið því til staðfestingar/sönnunar en uppgötvar að vegna þess hve það safn er risastórt er nánast óframkvæmanlegt að ætla sjer að sýna það hjer.
Bíddu er það ekki eitt aðalsmerki gestapó að afvegaleiða umræðu út í tóma vitleysu ?
E.s. Það er ég sem er yfirsigurvegari
Í gær voru tímamót, Bleiki Ostaskerinn átti 10 ára afmæli og það þýðir að það eru 10 ár síðan Hvæsi var fyrst sagður bleikur...
http://baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?p=813051&highlight=bleikur#813051
SEM HANN VAR!!!
Hvæsi, ég veit þú ert orðinn gamall og grár. En þú hefur greinilega alltaf verið litblindur.
Ég er blár...
Og þú varst víst bleikur. Og það var bara krúttlegt.
Það er ekkert krúttlegt við mig. Ef ég man rétt þá er það Vladimir sem er krúttið
NEI!
Og það er staðreynd að þjer eruð bleikir. Það þýðir ekkert að nota gráan lit sem dulargervi.
Allt eru þetta þó aukatriði við hliðina á aðalatriðinu: Að vjer erum yfirsigurvegari hjer.
Nei. Það er ÉG sem er YFIR sigurvegari.
Ekki bleikur. Ekki krútt. Yfir sigurvegari.
♪♪♪ Allt sem er bleikt, bleikt, finnst mér vera fallegt, fyrir vin minn Hvæsidillumeistarann... ♪♪♪