Brestur í óstöðvandi grát
Mér til afsökunar, þá var jeg búinn að biðjast afsökunar á öllum mistökum fyrirfram.
Þetta er allt í lagi, þetta er svoddan leirburður að hann á ekkert erindi á kvæðasvæðið.
Ef þig langar hins vegar til að læra að yrkja vel ertu á réttu síðunni (en ekki rétta þræðinum reyndar).
Jeg á svo sem ekki staf í þessu kvæði, þannig að jeg tek því ekki persónulega þó hljóti ekki náð heimavarnarliðsins.
Áar mínir voru margir hverjir miklir kvæðamenn, en jeg virðist þó ekki hafa fengið snefil af þeim hæfileika, og því miður held jeg að vera mín hér breyti engu þar um.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Vertu ekki of viss. Það þarf bara að læra reglurnar og fara eftir þeim, og þó þær virðist flóknar þegar maður kann þær ekki þá eru þær það ekki þegar búið er að grípa þær allar. Ef þú getur tekið vinsamlegum ábendingum vel, þá er aldrei að vita.
hver vandar betur um við þá sem teygja hugtök til þeirra sem fleygja fögrum minningum um meyja mjaðmir