Já ætli það ekki bara (hef samt alltaf tengt andvöku við að vera ekki þreyttur þegar maður á að vera þreyttur). Vilt þú ekki bara koma með eitthvað Grágrímur, svo við drepum þráðinn ekki alveg úr þreytu?!
Þegar manni er sagt að eitthvað sé gjörbreytt en sér enga breytingu á því...
Epplað. Dæmi um notkun: Mér sýnist þeir bara hafa ''epplað'' þetta.
Í það minsta tek ég aldrei eftir neinum tækninýjungum þar á bæ, nema vörurnar endast alltaf styttri með hverjum árgangi.
Þegar maður fer í sokkana ósamstæða, ranghverfa og öfuga.
Þá er manni alveg fótsama um útganginn á sér.
Fólk sem kaupir sér dýra snjallsíma en nennir ekki að læra á meira en myndavél og vekjaraklukku.
(p.s. það er yndislegt að lesa þennan þráð frá upphafi til enda, sum þessara nýyrða ætti að taka inn í orðabækur!)
Eplingur.
Þegar allt sem maður á bilar á sama tíma.
Tækjasorti
Það að vera alltaf með kveikt á samskiptamiðlum en svara aldrei þeim sem reyna að eiga samskipti við mann.