Nú hefir birzt á forsíðunni frétt um líkleg yfirráð Ólafs Ragnars Grímssonar á veðurvél frá Asíu. Úr því að veðurvél veðurfarsstofnunar Baggalútíu er upphaflega frá Hakuchi komin, spyrjum vér Huxa: Er vélin örugg, eða hefir Ólafur stolið henni?
Huxi! Á ég að trúa því á þig að þú hundsir spurningar sem þú getur ekki svarað?
Hann svarar varla mörgum ef hann svarar bara þegar hann veit svarið. Hristir parrukið og hverfur í hvítu skýi
Þetta endalausa vetrarríki er afar grunsamlegt og bendir eindregið til að óvinir ríkisins hafi stolið veðurvjelinni.