Passa sig, ekki festa þær allar. Losar um valdar skrúfur
Hversu mikið má herða lausu skrúfurnar? Veltir vöngum
Þar til þær eru forskrúfaðar. Þá er gott að stoppa.
En má herða þær að þér forspurðum? Fær sér skrewdriver
Jú jú, en ekki að mér forskrúfuðum.
Forskrúfar Billa
Forherðist
Sigrar
Ertu búinn að vera lengi atvinnulaus?
Nei, bara síðan rétt áðan.
Birtist
Hverfur
Súrsar
Ertu búinn að vera lengi atvinnulaus?
Jeg hef aldrei verið atvinnulaus, takk fyrir að spyrja.
Fæddust þér þá inn í starfstétt yðar?
Afsakið. Ef undan eru skilin bernskuár, þá hef jeg aldrei verið án atvinnu.