Eltir fólið
Hvernig bregst þú við þegar fólið sem býr innra með þér brýst út?
Fagnarðu því eða streitistu á móti?
Á þetta samfélag sér nokkra von lengur?
Hvernig bregst þú við þegar fólið sem býr innra með þér brýst út?
Fagnarðu því eða streitistu á móti?
Ég fagna því með dansi. Það er örugg aðferð til að hræða fólk í hæfilega fjarlægð svo að fólið skaði það ekki og ekki síður til að hræða fólið svo það skríði aftur í skotið sitt.
Á þetta samfélag sér nokkra von lengur?
Það á sér vissulega von...
-að nafninu til. En hún er veðsett upp fyrir hæstu mænisása og er sliguð af andlegum okurvöxtum.
Misskörun daglegrar greiðslubyrgðar andlegra okurvaxta og líkamlegra gengistryggðra dráttarvaxta, hver er hún?
Takk.
Misskörun daglegrar greiðslubyrgðar andlegra okurvaxta og líkamlegra gengistryggðra dráttarvaxta, hver er hún?
Takk.
Þar eð líkami og sál eru aðeins tvær hliðar á sama péningnum þá er skörunin algjör.
Hvar er tímavélin?
Einn Gamall En Nettur stal henni og fór með hana á Grund. Þar fór hann fram í tímann, (til ársins 2034). Er hann var (verður) staddur þar í tíma, fékk (fær) hann nett heilablóðfall og hefur ekki komist til baka. Hann fékk (fær) auðvitað úrvals læknisþjónustu og er (verður) jafngóður af heilaskemmdunum og gott ef að hann fékk (fær) ekki lækningu við lömuninni líka. En hann görðist (gerirt) hins vegar full fjölþreifinn við heilalækninn, (en hún er núna 3 ára gömul og er á Grænuborg að éta sand). Því var (verður) tímavélin og EGEN aðskilinn um óákveðinn tíma.
Jú. Nýjar spurningar væru vel þegnar.
Dugar ein ný spurning?
Ein ný spurning í einu, væri alveg fyrirtak.
Er þessi þá líka fyrirtak? Ljómar upp
Á skalanum 1 - 10 fær hún 4.
Sem sagt ekkert spes, en dugar þar til betri berst. Ljómar lítillega upp
Hverju getum við austfirðingar þakkað þennan milda og góða vetur?
Hverju getum við austfirðingar þakkað þennan milda og góða vetur?
Góðvild Forstöðumanns Veðurfarsstofnunnar Baggalútíska Heimsveldisins. (Sem er ég, Huxi)
Hann hefur stillt veðurvélina þannig að þrálátar vestanáttir hafa gert það að verkum að hnúkþeyr hefur verið nokkuð algengur á Asturfjörðum.