Það tilkynnist hjer með opinberlega að þeir er eigi eru blindir ættu að sjá að útlit Gestapósins er nokkur óvenjulegt þessa stundina. Höfum vjer óvini ríkisins sterklega grunaða um að standa á bak við þetta Setur öll gjöreyðingarvopn í viðbragðsstöðu.
ég er sennilega blindur Brestur í óstöðvandi grát
Ég sé engan link á spjallborðið lengur.
Hefur skaparinn afneitað sköpun sinni?
Það eru nokkur ár síðan Skapararnir yfirgáfu okkur... þetta er sennilega vísbending um að þeir komi ekki aftur og huxanlega gereyðingu okkar.Klórar sér í höfðinu
Fær hnút í magann Þýðir þetta að það koma engir nýliðar framar?
Ég sé engan link á spjallborðið lengur.
Hefur skaparinn afneitað sköpun sinni?
Er það ekki þetta sem gerist alltaf öðru hvoru, krökkunum er sleppt lausum og fá að sjáum um sig sjálf?
Guði sé lof að vinin er hér enn, þó slóðin sé burtu máð.
Jæja linkurinn er kominn. Hann virðist bara hafa gleymst.
Gleymst og ekki gleymst. Ég spurðist fyrir um málið:
Þann 5. september 2011 08:38, skrifaði Golíat<goliat@grænir.is>:
Góðan dag og gleðilega sláturtíð,
Hvað eruð þið búnir að gera við Gestapó og vini mína þar, ruddarnir ykkar?
Kv,
Golíat
Og fékk þetta svar frá Vendihnappi:
Heill og sæll!
Hún er á sínum stað. baggalutur.is/gestapo
Ég er bara ekki búinn að ákveða hversu vel ég fel tengilinn á hana.
E.
Hvað er linkur og hvað er spjallborð?
Hvað er linkur og hvað er spjallborð?
Linkur er tæki sem notað er til að senda eða endurvarpa sjónvarpsmerkjum, t.d. í beinum útsendingum. Spjallborð hefur ekki neina fasta ákveðna merkingu það ég veit, en stundum var sagt að eldhúsborðið hjá henni Jónasínu í Innri-Útnára væri sannkallað spjallborð, því þar héldu til allar helstu kjaftatífur sveitarinnar, reyktu Viceroy, drukku kaffi og sögðu missannar sögur af sveitungum sínum.