— GESTAPÓ —
Skilaboð utan úr geimnum þýdd
» Gestapó   » Efst á baugi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sannleikurinn 5/10/10 12:26

Það vottast hjer með að ég telji að mjer hafi tekist að þýða skilaboð utan úr geimnum sem ákveðinn aðili hafði tilkynnt vor að hafa komist yfir í gegnum örbylgjuofninn sinn.
Skilaboðin eru á eftirfarandi leið; ´OVERLOOK HÓTELIÐ LEITAR AÐ NÝJUM UMSJÁANDA. ÞÚ VARÐST FYRIR VALINU ÞAR SEM AÐ ÞÚ ÁTT ÖRBYLGJUOFN , OG ÞAR SEM AÐ ÞAÐ ER AUÐVELDARA FYRIR HÓTELIÐ AÐ NOTA ÖRBYLGJUOFNA TIL AÐ ELDA MAT OFAN Í GESTINA , HELDUR EN HEFÐBUNDNA OFNA´
VIRÐINGARFYLLST - HÓTELSTJÓRNIN.
Vinsamlega ath; þetta er ekki tilraun til þess að fremja höfundarréttarbrot.

..
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sænska flikkan 12/10/10 21:37

En spennandi. Mér hefur alltaf langað að starfa úti í geim/geym...... bíð eftir skilaboðum í minn örbylgjuofn. PS. ég er mjög góð með geisla fabrikkuna líka‹Stekkur hæð sína›

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sænska flikkan 12/10/10 21:39

Þar sem ég er skrifblind og lesblind líka, biðst ég forláts á þeim villum sem koma framm í skrifum mínum. Er voða dugleg að lesa yfir það sem ég skrifa en þar sem ég er lesblind.........‹Ljómar upp›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Huldra 13/10/10 13:26

Aldrei hef ég fengið svona skilaboð úr geimnum. En mér tókst hinsvegar að senda köttinn minn útí geim eitt sinn þegar ég ætlaði að þurrka hann. Var að spá í að reyna að fara á eftir honum en ég komst bara ekki inní örbylgjuofninn. Ég er samt alltaf að bíða eftir skilaboðum frá kisa en það bólar ekkert á þeim.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Urmull Ergis 16/11/10 17:33

Iss, það er langt síðan ég hætti að hlusta á örbylgjuofninn minn. Miklu meira vit í hrærivélinni.

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
ullarhaus 11/5/11 19:32

ertu nokkuð i hlíðunum eg var nefnilega á þessum tima að reyna að tengja tölvuna við örbylgjuofninn það gæti hafa truflað eitthvað rafmagnsveitu i hverfinu þar sem eg er ekki rafvirki en eg komst þó að þvi að það er ekki að gera sig að senda mynd af beykoni og eggi i ofninn það virkar ekki

» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: