Mig vantar fallega vísu um konu sem heitir Þorgerður.
Hún er lítil og nett og svolítið að dufla við nýaldarfræði, yoga, náttúrulækningar, kristalla og þannig!
Salli varst þú ekki farinn
Bara það að Upprifinn skuli vera að hnusa af þessari vísu sannfærir mig um að téð vísa verði hreinræktað níð.
Þorgerður er þokkadísa nettust
þokkalega sæt og meyja léttust
yfir barminn mærin sýnist mettust
en magalínan, beinust er og sléttust.
Nýaldar- hún kann að njóta -bóka
náttúrulækninga, kristalla og yoga
undir vegg hún aldrei tekur smóka
en unir sér við lestur góðra bóka.
Elsku rinir, ekki er ég að djóka.
Jeg var eitthvað að hugsa um að fara en komst að þeirri niðurstöðu eftir að hafa verið pínulítið hugsi um það að það væri nánast óhugsandi - og betra þess í stað að breyta um hegðan í samræmi við gagnrýni........