Fáðu þér sæti, sæti ágæti
og sýndu af þér kæti.
Syngjandi gæti ég gengið um stræti
með gleði og læti.
Læti eru þetta í þér
þusar gamla Lína.
þorirðu að mæta mér
og mundar prjóna sína.
Sína vilja vinstri menn
vondum pína sköttum.
Og Jóhanna er æ og enn
úti að smala köttum.
Köttum mörgum safnar saman
sannur heiðursgesturinn
Með honum er Danska daman
Dorote og presturinn.
Presturinn í pontu stóð
og predikaði af trúarmóð
um þann drottins eina sjóð
er við fáum ef verðum góð.
Góð var hjá þér Billi bagan
blessun prestsins frekar góð
Það var gamla sanna sagan
sannarlega í fjöldan tróð.
Tróðið hefur trosnað burt
talsvert hörð er seta.
Samt ég ennþá sit um kjurt
og sæll í stólinn freta.
Freta hestar feyknin öll
fnykurinn er slíkur.
Prumpa beljur,tófur tröll
talsvert,litlar píkur.
Píkusögur um ég er
ekki nógu fróður.
Kannski vel í karla fer
sá kvenbókmenntasjóður.
Sjóður góður sjóða bestur
sjáðu mína bankaskruddu,
Svo er góður hvítur hestur
og hellingur í minni buddu.
Buddu mína máttu fá
og moka úr henni klinki.
Bland í poka pantar þá
prakkarinn minn flinki.
Flinkur er Billi bilaði
bjarvættur á lúti.
En ungur foli fyljaði
Franska meri úti.
Úti er kalt og kólnar allt
kuldinn alltaf bítur
vita skaltu að víst er svalt
og vont er salt á pítur.
Pítum hef ég, piltur minn,
puðrað í mig stundum.
Er ég blessað bragðið finn
ég barma- gleymi -fundum.
Bamafundi furðar mig
að fáir, Billi, nána.
Er pítum í þú pundar þig
og pilsner í aðra tána.
tánni minni vil ég víst
vel í sokkinn troða
en öðru fólki allra síst
ætla til að skoða.
„Skoðanir virðast sem endaþarmsop:
Allir slíku skarta.“
En þegar þær birtast sem skefjalaust skop
skal ég ekki kvarta.
Hér er vitnað í sjálfan Dirty Harry.
Kvarta konur manna mest
mörg er þeirra raunin.
Sumar vilja þær pína prest
prúðar og sleikja kaunin.