Kokkurinn er kátur nú
kæst er gott í potti.
Á því hef ég einatt trú
að að því flestir glotti.
Sólin hefur hækkað sig
í hátíðar- fer -kjólinn.
Sólin hefur hækkað sig
í hátíðar- fer -kjólinn.
Myrkrið ríður mér á slig
mikið gleðja jólin.
Fimbulkuldi Frónið skekur
fjandi er nú orðið kalt.
Fimbulkuldi Frónið skekur
fjandi nú er orðið kalt.
Þetta mig á taugum tekur
talsvert vantar í mig malt.
Kringlu er ég kominn úr
keyptar allar gjafir.
Kringlu er ég kominn úr
keyptar allar gjafir.
Fer i bólið og langan lúr
losa svefn og meiri gjafir.
------------------------------------
Blessuð koma barna jól
björt er stjarna ljóssins,
Blessuð koma barna jól
björt er stjarna ljóssins,
þá ég fer í þunnan kjól
frá þér ég bíð svo hróssins.
Jeg vil á mig jeta gat
í jólamatarveislum.
Jeg vil éta á mig gat
í jóla matar veislum.
Gjöf min verður fallegt fat,
með fjölda snáun geyslun.
-------------------------------------
Nú um jólin gleðjast gumar
Gáttaþefur og bræður hanns.
Nú um jólin gleðjast gumar
Gáttaþefur og bræður hanns.
Fá sér skötufisk og humar
og fimbultrylltan stíga dans.
Ærlegt skrall ég ætla það
er ærslasveinar halda
Ærlegt skrall ég ætla það
er ærslasveinar halda.
Ef þeir fara ekki í bað
þeir illum pestum valda.
Ef þú símtal ekkert færð
í þá skaltu hringja
Ef þú símtal ekkrrt færð
í þá skaltu hringja.
Blaðursskjóðan Nóra er nærð,
nokkrar bjöllur klingja.
------------------------------------------
Gefðu mér gull í skóinn
góði besti sveinki minn.
Gefðu mér gull í skóinn
góði besti sveinki minn.
Fann ég að hreindýr fló inn
fyrir jólaaftaninn.
Líður að jólum, ljósin nú,
lifa í hverjum glugga.
Líður að jólum, ljósin nú,
lifa í hverjum glugga.
Utan í krist og kærleikstrú
sér kaupmennirnir nugga.
Ég fékk á jólum fína bók,
fræðirit um sveppi.
Ég fékk í skóinn fína b+ok
fræðirit og sveppiþ
kartöflu líka bláa brók,
banana og leppi.
-------------------------------------------
Áðan mættust stálin stinn
Stína gamla og karlanginn.
Ég fékk á jólum fína bók,
fræðirit um sveppi.
Sveppagróður gleði jók
í Gaulverjabæjarhreppi.
Milli jóla og nýárs nær
nautnalíf að sjatna.
Æ æ ég var of sein.
Áðan mættust stálin stinn
Stína gamla og karlanginn.
Herfan gamla og höfðinginn.
Hann varð þegar ástfanginn.
Milli jóla og nýárs nær
nautnalíf að sjatna.
Milli jóla og nýárs nær
nautnalíf að sjatna.
og vetrar blíðu tignin tær
tíðin fer að batna.
-----------------------------------
Upp í loftið púðri puðrum,
peningarnir brenna út.
Upp í loftið púðri puðrum,
peningarnir brenna út.
Það er skárra en skjóta tuðrum
eða skrifa á Baggalút.
Til enda rennur árið senn,
enginn mun þess sakna.
[i][/
Til enda rennur árið senn
enginn mun þess sakna.
Grúttimbraðir munu menn
að morgni dags á nýu vakna.
---------------------------------------------
Brennur stórar verða víða
veður spáin frekar góð.
Brennur stórar verða víða
veður spáin frekar góð.
Gamlárskvöldsins börnin bíða
bráðum verða trítil óð.
Flugeldarnir fljúga þá
og fegra himinn ljósum.