Þitt er loðið lærabú
lostafulla dama.
Til er búinn þegar þú
þarfnast vin'hinns sama.
Sama er um syndir þínar
séra vertu fljótur,
að gamna þér með gimbrar mínar
gamall, sæll og ljótur.
Ljóta, fljóta frussan
fóta-gjótu-tussan.
Blót og hnjót því hlussan
hljóti, Tótu-brussan.
Brussan ljóta hlussat her
hrífur bónda skussan,
Uppi rúmið brölta ber
bosandi hlær tussan.
Tus san ferð ég taka vil
og tæta um loftin blá.
Heim svo fer ég hérumbil
er helgin enda má.
Má til kvöldsins bara bíða
blanda mun ég þá í glas.
Því nú er úti bongo bllíða
á ballið fer og ekkert þras.
Þrasgjarn jafnan Þráinn er
um þetta leitið
ef að hann nú ekki fer
í eitthvert teitið.
Teitur Magnús Tuliníus,
Tóbías og Árelíus
upp á fjallið Vesúvísus
vildu senda Kornelíus.
Korelíus Konfúsíus
kunni utanbókar.
Ekur hann nú um á Príus
sem afar lítið smókar.
Smóka tekurTobbías,
og treður í pípu,gefið.
Segir herra Hósías
hneggjandi gegnum nefið.
Nefið, sem gagnlegust græja er vor,
- því gaman oss þykir að anda -
er stundum svo troðið af tóbaki og hor
að talsverðan skapar það vanda.
Vanda skyldi valið á
vorum gjöfum jóla
svo að gleðin gangi ey hjá
og gatuppslíti sóla.
Sólarglenna sást í dag
sindra á hæstu tindum.
Á litinn eins og legið þvag
úr löngu étnum kindum.
Kindum hef ég komið nær
er koma þær í réttir.
Þær þá virðast alveg ær,
eru það nokkuð fréttir?
Frétt ég hef að hafi skeð
hækkun verðs á káli
þó ég geti það vart séð
að þetta skipti máli.
Sólarglenna sást í dag
sindra á hæstu tindum.
Á litinn eins og legið þvag
úr löngu étnum kindum.
Klappar
Málflutningsmaður
mega glaður
glæstur graður
geðtruflaður.
Geðtruflanir gera mér oft grikki ljóta.
Á flótta einatt þarf að þjóta
þegar búinn er að skjóta.
Og velkomin í hópinn Drífa.