— GESTAPÓ —
Öfugmælavísur
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3, 4  
 • LOKAР•  Senda skilaboð
Tobbi heimalningur 1/9/04 23:44

Framsókn mun fá fylgi mest
frúin oft vill ríða
dýrleg mér þykir drullupest
daunill sumarblíða

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
voff 2/9/04 00:15

Bensínlausir fara bílar greiðast.
Bellir linir kæta meyjarnar.
Heimdellingar horskir fáu reiðast.
Helst við þurfum göng í eyjarnar.

(göng í eyjarnar = sú "snilldar"hugmynd að gera jarðgöng til Vestmannaeyja)

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 4/9/04 23:32

Vér höfum aldrei orðið
aldrei notað í sálmum
Fagurt og friðsælt er morðið
fíflar vaxa af málmum

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Agúrkan 5/9/04 10:57

Agúrkan er agnar smá
sem agar á að líta
Tilveru engin takmörg á
Teljum peningum hana skíta

Hrjúf og hnúðótt húðin gæfi Agúrkunni sérstaklega aðlaðandi yfirbragð ef ekki væri fyrir fjólubláann blæinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 7/9/04 15:02

Öfugmælið alltaf er
yndisfagur sannleikur
Kassalaga krækiber
krunka sem spói bleikur

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Frelsishetjan 7/9/04 15:09

valdamikill vladimír
voðaverkin sýnir
kóbaltsprengja kasmír
kuti á rass brýnir.

Drottnari allra vídda. Guð alls svalls. • Eigandi sálar hins Mikla Hákons. • Eigandi Nærbuxna. • Sjálfkjörinn formaður Ritstjórnar.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 7/9/04 16:57

Vökvi er vatn ekki
víst er Ísland flatt
vil ég vera í reykjarmekki
víst er þetta satt

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 10/9/04 00:42

Ég er gamall geithafur
grasið bít ég ekki,
ekki heiti ég Bílífur
engin samt mig þekki.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 10/9/04 09:38

Súmóglímukappinn kvæði
um kolvetni og skyr hann orti
Óhollustu sjaldan snæði
sjáið mig hann hló og gorti

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 10/9/04 21:18

Hauga brym í Breiðholti
bægslast kýr á sjónum,
lítill ljótur fótbolti
labbar um í snjónum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 11/9/04 03:11

Hægðatregðu hægast er
handsprengju að nota
virkum skal í þarma þér
þessum græjum pota

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 12/9/04 00:13

Frelsishetjan flímar bes,
fallega Krummo ljóðar.
Leirinn Barbi mótar mest,
Merzeders eru skrjóðar.

 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 3/10/04 20:57

Mörgum verður valt á því
vaða í eiginn skugga,
Lómurinn er að bræða blý
bjástrar lamb á glugga.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 3/10/04 21:12

Stríð er fjandans friður
Fáfræði er máttur
Frelsi er ánauð, stríðið styður
Stóri bróðir ósáttur

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð
krummo 6/10/04 22:27

Sólin kaldur knöttur er
kýr á tungli þrífast,
Davið, Dóra á baki ber
daga alla rífast.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 8/10/04 03:35

Við magaverk þambaðu þynni
þurrkunta blotnar af sandi
brennivín eykur mjög minni
mökkreyktu svo að þér standi

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Frodo 19/10/04 00:17

Kvæði:

Hvurn fjárann má líta hér,
bæði hunda og rollufé.
Ég bæði syng og lem,
jú dónt knóv vúh æ em.

Frodo • Stuttlungurinn með loðnu fæturnar • Kokkur Café Lausnar
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 19/10/04 00:20

Frodo yrkir fjandi vel
ég fíla enskar slettur
magnar öfug mæla vél
mjög er nú ég léttur

LOKAÐ
        1, 2, 3, 4  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: