— GESTAPÓ —
        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10  

Eftir vetur lifnar ljós
lífið heldur áfram
Vorið kemur vaknar rós
veturs losar hramm

Aftur haustar halda menn
hringrás lífs ei kveður

Tilbaka ei tek orð mín
trúin er bull og þvaður
Kirkjan er tros og tálsýn
Tilbeðin guð ei maður

Kóka Kóla drykkurinn
er allra besti kostur
semdu ei kvæði sonur minn
sæktu í prón og nostur

Kvæði sýnir sálar hátt
svalar kóla þorsta

Ber af öðrum bræðrum sá
er böll hefur ósvikinn
Lostahrossið legg brátt á
legg á skeiði mikinn

Hóli á einum litlum, ljótum
lék mér í bernsku einsamall
að ketti og hundi helvíti ljótum
hæverskur samdi bragarfall

Hún Theresa móðir mín þagði
þegar guð henni svaraði að bragði
hér þú titrandi liggur
og tittlinga þiggur
og til blessunar yfir það lagði

Maggi þykir mikill spaði
mundar ljóðasprotann kátur
ótt og títt en ekki í baði
og aldrei þegar hann tekur slátur

Gunnarsson grét lon og don
gaf svo fra sér vínið

Í gærkveldi sá gamlan örn.
Gæti verið tremmi?
Aldnir verða aldrei börn
allra síst hann Hemmi

Hrædd hún er við hrossbelli
hringanóra
ríf í hana og rassskelli
rumpinn klóra

Strjúka huppa herlega
hórs á ferðum drengir
Björn á Huppu berlega
Bóndast herðast kengir

Tótemsúla á torgi friðar
túristana lokkar
Legstein hingað lennons miðar
Ljúf er Joko okkar

Ferðamenn hér leggja leið
langar súlu að skoða

Fastar hnykkja hnátur þær
hnífs með eggjum deigum
Lasta skikkju legg í vær (lasta skikkja er smokkur)
lífsins dreggjum seigum

Fryggðarsprettur Fíbblagangs
um flóa Borgarfjarðar
við mýrarfen og merarflangs
marga gradda jarðar

Farðu og veiddu, þar sem þér hentar augsýnilega ekki að búa til fyrriparta :)

Fyrri partar firra mig
fjandi góðri ró
seinnipartar sýkja þig
sýfilis og þó

Róin færist yfir fólk
frekar seinnipartinn

Braginn yrkjum báðir þrír
best er nú að þegja
Allar hafa klaufir kýr
Sem Kristni drottins deyja

        1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: