— GESTAPÓ —
     1, 2, 3, 4, 5  

Hjálmar Freysteinsson fyrrum læknir á Akureyri orti nýlega vísu þar sem hann sótti andagift í ummæli fyrrverandi umhverfisráðherra. Vísan er undir yfirskriftinni íþróttameiðsl er svohljóðandi:

Sögu ...

Mannsins er það mesta yndi mjöð að drekka
þá er gott á krá að kíkka
því konur allar talsvert fríkka

Getur verið að Björn Ingólfsson eigi þessar línur?

Sælir veri þeir sem vilja hlýða:

Nú er ég búinn að vera í Austurvegi í nokkra tíma, langan tíma í Ósló og þeirri dvöl kýs ég að lýsa svona:::

Hér laglegar meyjar má líta
og langar mig margar að ...

Þetta tel ég vera Ómar Ragnarsson

Kambur er rétt og þrír þessara kamba eru réttir en gaman væri að fá annan kamb í bílinn, kambás er vissulega það sama og knastás en það er ekki það sem vakti fyrir mér.

Og hér er önnur:

Í það minnsta einn í bíl
eknir sunnan heiða
þótti flott í frökkum stíl
flækjur kann að greiða

Ekki veit ég upp á hár
út á hvað það gengur
best er vera bara smár
blíður góður drengur

þetta er alveg rétt. Mín hugsun var eyndar Jökulsá á Brú en það skiptir ekki öllu máli.

Eftir langvinna kyrrð á þessum þræði ætla
ég að raska rónni með þessari vísnagátu:

Oft það fer um öldurót
auðkennist því mikið fljót
borgara þar bragða má
og bláir sínar rimmur há

Komdu snjöggvast, Znati minn,
snjalli vinur kæri.
Bíður heima' í Köldukinn
kolagrillað læri.

Þei þei þei þei þaut í holti tófa
þurrann vill hún blóði væta góm

Ég ætla að giska á Jóhannes úr Kötlum

Kjaftstór þykir konan sú í kvikmyndunum. - Julia Roberts
Bítlalagið mörg við munum. - Julia af hvíta albúminu
Mátti ei sinna elskhuganum. - Júlía hans Rómeó

en er þetta ekki bara þremenning ...

Degi hallar löng var lotan
lúin ég kvíli bein.
Strýk á eftir vanga votann,
vatn á myllustein.

Frægðarrós og framavon,
firnist, ekkert gerist.

Davíð Stefánsson held ég að eigi þessar línur.

Björn Ingólfsson

Er þetta Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð

Er þetta Hjálmar Freysteinsson

     1, 2, 3, 4, 5  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: