Lúnar eru lappirnar!
Legg ég upp á klappirnar.
Reyndar er hér rapp innar.
Selur Bjarni banka af list.
Bætir þjóðarhaginn.
Passar uppápabba fyrst
með pening er hann laginn.
Þenar landsins þorna ei
á þjóðhátiðardaginn.
Varla er gott að vinna með
vænisjúku fólki.
Dágott er að drepa peð
með digrum byssuhólki.
Í Merardölum gýs nú gos
glóir þar nú hraunið..
Ég get um það talað trútt.
Tuða ég því mikið.
Forsetinn er fallegt krútt.
sem felur á sér spikið.
Verðlagið nú hækkar hratt
en hrapið verður stærra.
Kreisti mína tannkremstúpu
tæmda fyrir löngu.
Borða núna bara súpu
svo búkur verð*að öngvu.
Aftur nú og enn á ný
enn ein bylgja hafin.
Vladimar er krútt.
Sumir fremja mannorðsmorð.
Margir þekkja haus og sporð.
Kvár og stálpur eru orð.
Var fyrirgreiðslufé þér veitt?
Finnst þér orðið nógu heitt?
Er þér nokkuð lífið leitt?
Líst þér best á númer eitt?