Kettir eru kynleg dýr
Kostulegur er ég fýr
Upp til allra hæðstu hæða
hálfvitarnir tróna sér
Ek vil tinda alla bræða
upp á þeim svo hreykja mér.
Ég er eins og Lappi litli
lunkinn hagyrðingur.
Öskureiður Eyjafjallajökull
alveg búinn á'ðí eftir lætin
Ekki er því að treysta. Vertu vökull.
Veit ég hann er illgjarn bæði og rætinn.
Ertu svangur Sími minn?
Svona! Hérna' er rafurmagn.
Sóleyin er gul og græn
Sonurinn nú sefur vært
Svínið það er illa hært.
Öllum verður allra bezt
æ-ið við að merkja.
Eftir kjör þeir æja mest.
Illa mun þá verkja!
Alltaf set jeg ex við dje
enda´ á móti póli tík
Kjósa borgarbúar Gnarr
Bæjarstjórnarfylgið þvarr.
Aldrei hef ek borið barr.
Fyrir austan verður grafið gull.
Greyin ekkert finna. Þetta´ er bull
Bestur flokkur býður fram
býsna rokkar hann nú feitt
Lát hann brokka. Beitum skamm-
byssum okkar fólk mitt reitt
Höndin mjúk sem fiskiflak
fór að strjúka þína.
Frosið hafa fastar eigur vinar.
Höndin bláa helköld ei
hraðfryst tak sitt linar.
Viskí er nú versta sull
Vísur eru margoft bull
Hlotnaðist mér glópagull.
Fari menn á fyllirí
flesta sína daga
Mörgu sinnum fá þeir frí
flat- þá stundum maga.
Langi þig á Litla-Hraun
löng mun verða biðin.
Öllum mönnum vil ég vel.
Víst er hart að bíta í skel.
Vor er komið. Víst það tel.
Gægsin hérna grýta öpum.
Skó af hægri hef ég alltof marga.
Vinstri fótar vantar skó.
Viltu þessu bjarga?
Reiðin magnast, ríkur brátt,
því rummungs hagnast bankar.
Þangað dragnast óður átt
eigi gagnast þankar.
Ef þú borar upp í nef
eta horið skaltu.
Fötu minni fullri´ af skít og hlandi
dembi´ ek út í dauða mörk
Dafna grös í sandi.
Rauðhetta ákvað að lötra niður Laugaveg
í ljósbláum stuttum kjóli með sótugu ferhyrndu gati.
- Ákvörðun þessi var talin fagurfræðileg
og forsendur hennar allsekki byggðar á raunsæju mati.