— GESTAPÓ —
        1, 2, 3, 4 ... 79, 80, 81  

Grágrímur er sínkt og heilagt á sneplunum. Enda með RISAVAXNA eyrnasnepla sem flaksa í vindinum. Réttara væri jafnvel að tala um eyrnabægsli, slíkur er fyrirgangurinn á þessum ofvöxnu húðflipum og s ...

Maddaman ber af í hópi kerlinga, frökena og frúa . Eins og skínandi demantur jafnvel.

Herbjörn er yndislegur á allan hátt enda elskaður og dáður hvar sem hann fer.

Herbjörn er óttalegur uppskafningur og himpigimpi og lyktar af teningum. Fuss!

Þú þarft ekkert að borga leiguna þennan mánuðinn, langar þig ekki miklu frekar bara að fara að kaupa þér eitthvað fallegt?

Huxi er dásamlega tvíræður - heillandi daðrari sem vekur von um meira.

Barbie er stórkostleg, afbragðs kvenkostur, hjartahlý og hugumprúð. Og sérdeilis hógvær líka.

Huxi er hallærisgaur
heftur í orði og viti,
líkist helst ljósastaur,
litlum og engum að nyti.

InnleggSkammast í Bundnu. - Barbie - 30/3/12 11:50

Margur heldur mig sig,
metur ekki að kostum,
ýldugrænn sig át á slig
Offara að brostum.

InnleggHefur þú? - Barbie - 30/3/12 09:00

Búin að því. Allir skallar glansa í kringum mig.

Hefur þú borið vitni?

InnleggSkammast í Bundnu. - Barbie - 30/3/12 08:56

Nermal stöðugt nauðar hér
nötrandi í skinni:
,,Barbie sýndu brjóstin mér,
bara einu sinni?"

InnleggÖfugmælamót - Barbie - 29/3/12 22:43

Fáviskan er fegurst dyggð.
Fjörður eru lífseig byggð.
Flagarar hafa fest´og tryggð.

InnleggÖfugmælamót - Barbie - 29/3/12 22:41

Fáviskan er fegurst dyggð.
fáskipti oft lýsir tryggð.

InnleggKveðist Á - Barbie - 29/3/12 22:25

Þroskaheftur, þráhygginn
þágufallsýktur líka
sjúkdóm á þig set og finn
segir þú Óli píka!!

Túnfiskssalat.

InnleggRafmæliskveðjur - Barbie - 29/3/12 22:10

Rafmagnaðar rafmæliskveðjur til Upprifins á þessum ágæta marsdegi.

InnleggSkammast í Bundnu. - Barbie - 29/3/12 17:59

Skammir í þríriti þarfu
þér dugir vart vísa stök,
mér víst af einhug anntu
elskan það kemur að sök.

Huxi er sjálfumglaður besserwisser með greind á við blauta tusku. Og örugglega flokksbundinn í Framsókn líka. Hnuss og svei!!

        1, 2, 3, 4 ... 79, 80, 81  
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: