Gervipíka er þarfaþing.
X við sitthvað setja menn.
SeXið þar á meðal.
PeXið lamar landann enn.
X við sitthvað setja menn.
Ég sá ekki þennan þráð.
Þvottabjörn er ljúffeng bráð.
Eymd er böl ef að er gáð.
Vetur kóngur kominn hér.
Kom hann strax í desember.
Eins og móðir mildur er.
Lífið hér á landi virðist, lorem ipsum,
bara svona haps og hipsum.
Enn ég segi, eins og gjarna áður fyr:
sagan hefst við dauðans dyr.
Flest er bara fokk og klúður fram að því.
Bölvað rugl og bríarí.
baggalutur.is er besti vettvangur kvæðamennta á Netinu og ber að endurvekja hið snarasta.
Hér með stofna ég þráð til að snillimenni á vef Baggalúts geti komið á framfæri nýjum kenningum!
Nokkur ...
Ég geng oftast einn.
Oft er þvottur hreinn.
Pixies eru pjúra fjör.
Pizzur þurfa mikið smjör.
Gúglið á við öllu svör.
Undir klóum liggja rör.
Kaplar tíðum klippa gull.
Faraldurinn fór af stað.
Fullur er ég - nema hvað.
Allt mitt tau er uppvaskað.
Ær með kláða þurfa bað.
Afi minn er orðinn hrak.
Manstu þegar brúin brast
og bíllinn rann í fljótið?
fórstu strax í fýlukast
fyrsta stefnumótið.
Sólarglyðran svikul mjög
sukkar bak við fjöllin.
Nú endalokin nálgast senn.
Nagar margur í sér tenn.
Kata Jak er klikkað hrak.
Raunaleg streymir hún Rín,
rök eins og skjólfötin mín.
Wissen Sie was ich meine?
Hún silast með sull sitt hjá Bonn,
á sekúndu mörg þúsund tonn.
Ég hef þetta eftir Heine.
Aldrei kelfir köttur naut.